Framtíðarsýn okkar 2030: Norðurlönd eiga að verða sjálfbærasta og samþættasta svæði heims
Við á Norðurlöndum setjum okkur þá framtíðarsýn að verða sjálfbærasta og samþættasta svæði heims fyrir árið 2030. Samstarfið í Norrænu ráðherranefndinni á að þjóna því markmiði.
Til þess að sú framtíðarsýn rætist ætlum við að leggja sérstaka áherslu á:
- Græn Norðurlönd – Saman ætlum við að greiða fyrir grænum umskiptum í samfélögum okkar og vinna að kolefnishlutleysi og sjálfbæru hringrásarhagkerfi og lífhagkerfi.
- Samkeppnishæf Norðurlönd – Saman ætlum við að efla grænan hagvöxt á Norðurlöndum, byggðan á þekkingu, nýsköpun, hreyfanleika og stafrænni samþættingu.
- Félagslega sjálfbær Norðurlönd – Saman ætlum við að efla samfellt svæði án aðgreiningar þar sem jafnrétti ríkir og sem byggist á sameiginlegum gildum og enn öflugri menningarsamskiptum og velferð.
Á Norðurlöndum höfum við ítrekað sýnt að við erum sterkari saman.
Norrænu forsætisráðherrarnir hafa þá sameiginlegu framtíðarsýn að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030. Það er mikilvæg og krefjandi framtíðarsýn sem kallar á öflugt pólitískt samstarf, sérstaklega á tímum þegar landpólitísk spenna ríkir í nágrenni okkar, loftslagið, líffræðileg fjölbreytni og umhverfið á undir högg að sækja og þegar hin stafræna bylting, hækkandi meðalaldur og vanlíðan ungs fólks kalla á að við tryggjum samfélög okkar til framtíðar.
Æ ofan í æ hafa Norðurlönd sýnt að við erum sterkari þegar við hugsum og vinnum saman sem heild. Það er útgangspunkturinn í 14 nýjum samstarfsáætlunum sem munu með sameiginlegri nálgun, skýrri forgangsröðun og markvissum aðgerðum varða veginn í samstarfi ríkisstjórnanna í Norrænu ráðherranefndinni til ársins 2030.
Samstarfsáætlanirnar urðu til eftir innlegg frá atvinnulífinu, fræðaheiminum, borgarasamfélaginu, ungu fólki og ekki síst hinu þinglega samstarfi í Norðurlandaráði.
Hér er stutt samantekt:
- Sameiginlegur viðbúnaður skapar sterk Norðurlönd
- Menning, lýðræði og virkir borgarar eru grundvöllur norrænna samfélaga
- Hreyfanleiki og samstarfsnet skapa norrænan samstöðumátt
- Nýsköpun og ný hæfni tryggja vöxt og velferð
- Ný tækni krefst norrænna blandaðra lausna
- Sjálfbær nýting auðlinda á að vera þungamiðja grænna Norðurlanda
- Nýta þarf norrænar lausnir og forystu, jafnt innan Norðurlanda sem á alþjóðavísu
Þegar ég lít yfir allar samstarfsáætlanirnar fyrir norræna samstarfið fram til ársins 2030, þá efast ég ekki um að Norðurlöndin munu verða sterkari við upphaf næsta áratugar.
Vinna Norrænu ráðherranefndarinnar að framtíðarsýninni frá árinu 2021 til 2024 tók mið af sérstakri framkvæmdaáætlun. Í framkvæmdaáætluninni voru sett 12 markmið undir þremur stefnumótandi áherslusviðum. Samstarfsráðherrar Norðurlanda samþykktu framkvæmdaáætlunina haustið 2020.
Norræna ráðherranefndin hefur í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið Rambøll Management Consulting látið vinna skýrslur um hvernig Norðurlönd hafa þróast í samræmi við framtíðarsýnina. Skýrslurnar sýna að Norðurlönd eru á góðri leið með að uppfylla markmiðin þar sem löndin hafa náð miklum árangri sem samkeppnishæft og félagslega sjálfbært svæði. Þau eiga þó enn eftir að yfirstíga ýmsa erfiðleika áður en markinu er náð um græn Norðurlönd.
Fylgst er með hvernig vinnu Norrænu ráðherranefndarinnar að framtíðarsýninni vindur fram. Úttektirnar sýna að ráðherranefndin hefur skilað umtalsverðum árangri og náð fram breytingum í samræmi við stefnumarkandi áherslurnar þrjár og 12 markmið framkvæmdaáætlunarinnar fyrir árin 2021–2024.