Formennska í Norrænu ráðherranefndinni
Norðurlöndin fimm fara með formennsku í eitt ár í senn í Norrænu ráðherranefndinni. Formennskan skiptist á milli landanna eftir sérstöku kerfi sem byrjar á Danmörku, þá kemur Finnland og svo Noregur, Svíþjóð og Ísland. Breyta má kerfinu með sérstakri ákvörðun hjá MR-SAM af fyrir því liggja sterk rök (t.d. í skörun við aðra formennsku í alþjóðlegu samstarfi).
Formennskulandið stýrir starfinu á samstarfssviðunum. Gerð er formennskuáætlun þar sem settar eru og kynntar pólitískar áherslur norræna ríkisstjórnarsamstarfsins næsta árið.
Forsætisráðherra næsta formennskulands kynnir formennskuáætlunina á Norðurlandaráðsþingi að hausti áður en formennskuárið hefst. Áætlunin er gefin út bæði á rafrænu sniði og á prenti.
Það land sem fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni fer einnig með formennsku á fundum norrænu forsætisráðherranna það árið. Það sama á við um fundi utanríkis- og varnarmálaráðherranna sem haldnir eru án aðkomu Norrænu ráðherranefndarinnar. Á norrænum embættismanna gegnir formennskulandið einnig formennsku.
Formennska í ár og næstu ár
2026: Danmörk og Færeyjar
2027: Noregur
2028: Svíþjóð
2029: Ísland
Formandskabsprogram 2026
Hér getur þú lesið um fyrri formennsku Norðurlandaráðs.
Finnur þú ekki það sem þú ert að leita að? Hafðu samband við okkur.