Danmörk og Færeyjar taka við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni

01.01.26 | Fréttir
Ljósmyndari
Polina Kuzovkova, Unsplash
Eitt helsta forgangsverkefni formennskuáætlunarinnar verður að tryggja að Helsingforssamningurinn verði uppfærður þannig að hann taki mið af því að átta lönd eigi aðild að samstarfinu. Þá eru bæði samfélagsöryggi og samkeppnishæfni ofarlega á dagskrá dönsku og færeysku formennskuáætlunarinnar.

Þann 1. janúar taka Danmörk og Færeyjar formlega við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni fyrir árið 2026. Í formennskutíð sinni hyggjast Danmörk og Færeyjar vinna að því að skapa enn nánara norrænt samstarf á sviðum á borð við samfélags- og aðfangaöryggi, glæpastarfsemi þvert á landamæri, samekppnishæfni svæðisins í heild og vernd barna og ungmenna á stafrænum tímum. Jafnframt verður unnið að því að Grænland og Færeyjar, auk Álandseyja að því gefnu að Finnland og Álandseyjar óski þessi, verði fullgildir aðilar að norrænu samstarfi.

Morten Dahlin, samstarfsráðherra Norðurlanda í Danmörku: 

„Afstaða dönsku ríkisstjórnarinnar er skýr: Við tökum undir óskir Færeyinga og Grænlendinga um að löndin fá tækifæri á að taka fullan þátt í norrænu samstarfi á sömu forsendum og hin norrænu löndin. Það á að sjálfsögðu einnig við um Álandseyjar, óski Álandseyjar og Finnland þess. Ég hlakka til þess að leiða þessa vinnu.“

Sirið Stenberg, samstarfsráðherra Norðurlanda í Færeyjum:  

„Mikil þörf er á því á þessum tímum að efla sambandið og samstarfið við hinar norrænu frændþjóðir okkar. Færeyjar hafa verið hluti af norrænu samstarfi í meira en 50 ár og taka virkan þátt í samstarfinu á öllum sviðum. Færeyingar hafa áratugum saman óskað eftir og unnið að aðild í eigin nafni. Það er því gleðiefni að Færeyjar taki ásamt Danmörku við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni og við munum leitast við að setja á fót nefnd til að uppfæra Helsingforssamninginn svo Færeyjar fái fulla aðild.“

Helsingforssamningurinn kveður á um reglur norræns samstarfs og er oft vísað til hans sem „norrænnar stjórnarskrár“. Hann var samþykktur árið 1962 og síðast uppfærður árið 1996.  

Sameinuð á tímum breytinga

Formennskuáætlunin var kynnt á þingi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi í október. Við það tækifæri var eftirfarandi haft eftir Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og Aksel V. Johannesen, lögmanni Færeyja: 

„Á tímum svo mikillar óvissu ríður á að íbúar Norðurlanda standi saman. Lönd okkar eru sterk og hafa sameinast um einstaka samfélagsgerð sem einkennist meðal annars af miklu trausti, langri sameiginlegri sögu og djúprættu samstarfi. Eins og nú er komið er mikilvægt að geta reitt sig á samheldni landanna. Því er yfirskrift formennskunnar í Norrænu ráðherranefndinni árið 2026: Norðurlönd: Sameinuð á tímum breytinga.“