Formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja í Norðurlandaráði 2026: Almennt öryggi á Norðurlöndum

Presidentskap 2026: Nordisk overgripende sikkerhet
Ljósmyndari
Adobe Stock / sommart
Í formennskuáætlun Finnlands og Álandseyja í Norðurlandaráði 2026 er almennt öryggi sett á dagskrá norræns samstarfs.

Á tímum sem einkennast af geópólitískri ólgu, fjölþáttaógnum og auknum samfélagslegum veikleikum mun formennskuáætlunin efla getu Norðurlanda til að koma í veg fyrir og takast á við krísur. Lögð er áhersla á nánara norrænt samstarf um viðbúnaðar- og varnarmál, heilbrigðismál og afhendingaröryggi, mikilvæga innviði auk sálræns viðnámsþróttar, lýðræðis og trausts. Markmiðið er samhentari og sterkari Norðurlönd sem eru betur í stakk búin að takast á við áskoranir framtíðarinnar.