Færni framtíðarinnar

Störf hverfa og ný verða til, hvernig getur launafólk a Norðurlöndunum undirbúið þarfir framtíðarinnar? Norræna ráðherranefndin kallar saman sérfræðinga og aðila vinnumarkaðarins til að nýta nýjustu þekkingu við þróun lausna og vitundar. 

Ljósmyndari
norden.org

Kynning

Kynning

Við þurfum að auka samkeppnishæfni á Norðurlöndum og tryggja að engin heltist úr lestinni. 

Norræna vinnumarkaðslíkanið er þekkt fyrir samstarf milli hins opinbera og aðila vinnumarkaðarins. Gegnum árin hefur það tryggt öryggi, sveigjanleika og ríka aðlögunarhæfni – með mikilli atvinnuþátttöku, nýsköpun og hárri framleiðni. 

Það stendur þó einnig frammi fyrir áskorunum: þörf á hröðum grænum og stafrænum umskiptum, breyttri aldurssamsetningu íbúa og aukinni alþjóðlegri samkeppni.

Þess vegna hefur Norræna ráðherranefndin komið á fót nýrri ráðgjafanefnd þar sem fulltrúar þessara aðila koma saman og eiga þríhliða viðræður á norrænum vettvangi. Verkefni nefndarinnar er að leita svara við tveimur mikilvægum spurningum sem skipta sköpum fyrir samkeppnishæfni Norðurlanda til framtíðar.

Spurningarnar eru:

Hvernig sjáum við fyrir færni til framtíðar á Norðurlöndum?

Hvernig búum við til kerfi sem þar sem er betra samræmi milli færni starfsfólks og þarfa atvinnulífsins?

Eftirfarandi stofnanir sinna rannsóknum á færni til framtíðar:

Norrænt tengslanet um símenntun

Norræna rannsóknastofnunin í skipulags- og byggðamálum (NordRegio)

Norræna rannsóknaráðið (NordForsk)

Norrænt tengslanet um símenntun

Ný ráðgjafanefnd um færniþróun á vinnumarkaði

Norræna ráðherranefndin hefur komið á fót ráðgjafanefnd sem skipuð er fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, svæðisbundinna aðila og menntageirans í löndunum. 

Hjá Norræna tengslanetinu um símenntun (NLL) er að finna gagnlegt efni svo sem myndskeið, ráðleggingar og áhugahvetjandi efni. 

Framkvæmdastjórinn tilvitnun

Norðurlönd í þríhliða viðræðum

„Það logar undir okkur vegna þeirrar færnigloppu sem ógnar nýsköpun okkar og samkeppnishæfni. Þess vegna skiptir sköpum að atvinnugeirar og löndin nýti norræna líkanið sameiginlega til að finna lausnir sem styrkja vinnumarkað framtíðar.“

- Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar

Skýrslur

03.05.24

Livslångt lärande för framtidens arbetsmarknad

Publications number:
20924:520
04.06.25

Microcredentials in a Nordic perspective

Publications number:
18.11.24

Strategies to Address Nordic Rural Labour Shortage

Publications number:
2024:23
Thumbnail
27.11.18

The Nordic future of work

Publications number:
2018:555
09.11.23

Unga mäns psykiska ohälsa i Norden

Publications number: 2023:543
31.08.20

Digitalisering og højere uddannelse i Norden

Publications number: 2020:525
Thumbnail
27.09.18

Northern Lights on TIMSS and PISA 2018

Publications number: 2018:524
Thumbnail
18.04.16

Northern Lights on PISA and TALIS

Publications number: 2016:517

Tengiliðir

Frekari upplýsingar veitir:

Andreas Bojsen
Aðalráðgjafi/Þekkingar- og velferðardeild
+45 60 39 71 89
andboj@norden.org