Ný tækni
Gervigreind og ný tækni geta nýst vel við úrlausn margra af mikilvægustu samfélagslegu áskorunum okkar. Norræna ráðherranefndin styður samstarf sem hefur að markmiði að svæði Norðurlanda og Eystrasaltsríkja verði leiðandi á heimsvísu.

Ný tækni er þróuð og innleidd hratt í samfélagið . Gervigreind býður upp á mikil tækifæri til hagvaxtar og aukinnar framleiðni og hagkvæmni og getur nýst vel við að takast á við brýnar samfélagslegar áskoranir. Um leið getur notkun gervigreindar verið áskorun fyrir opinbera stjórnsýslu og ákvarðanatöku og haft áhrif á lýðræðislega ferla og upplýsingar vegna aukinnar hættu á til dæmis skekkju af völdum algoriþma og rangri eða villandi upplýsingagjöf. Eitt er víst og það er að ný tækni gegnir lykilhlutverki í stafrænni umbyltingu og mun áfram gegna sívaxandi hlutverki í hagkerfinu og í daglegu lífi.
Norræna rannsóknaráðið
Norræna nýsköpunarmiðstöðin
Sameiginlegar yfirlýsingar um nýja tækni
Yfirlit yfir stöðu skammtatækni á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum
Cecilia Leveaux
aðalráðgjafi
ceclev@norden.org