Guðbjartur Hannesson, varaforseti Norðurlandaráðs, er látinn

26.10.15 | Fréttir
Guðbjartur Hannesson
Photographer
Johannes Jansson/norden.org
Aðeins nokkrum dögum fyrir 67. þing Norðurlandaráðs bárust þær fregnir að varaforseti ráðsins, Guðbjartur Hannesson, væri látinn.

Guðbjartur var fulltrúi í flokkahópi jafnaðarmanna í Norðurlandaráði og hefur setið á Alþingi Íslendinga frá árinu 2007. Hann lést eftir skammvinn en alvarleg veikindi. Guðbjartur varð 65 ára gamall.