Um öll Norðurlönd og Eystrasaltslöndin

Dagur Norðurlanda

Dagur Norðurlanda verður haldinn hátíðlegur þann 23. mars. Á þessum degi fögnum við elsta svæðisbundna pólitíska samstarfi heims, norræna samstarfinu á milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs, Svíþjóðar, Færeyja, Grænlands og Álandseyja. 

Ljósmyndari
Unsplash

Í ár verður Degi Norðurlanda fagnað með ýmsum viðburðum alla vikuna á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Yfirskrift viðburðanna er lýðræði og ungt fólk og er markmiðið að kanna sýn ungs fólks á lýðræðið og framtíð þess. Í Eystrasaltsríkjunum er einnig fagnað 35 ára afmæli norræns-baltnesks samstarfs. Dagur Norðurlanda sjálfur er mánudaginn 23. mars og verður honum fagnað með viðburðum sem teygja sig yfir nokkra daga.

Auk viðburðanna mun Norræna ráðherranefndin standa fyrir stafrænum norrænum málakaffihúsum 22. og 23. mars. Allir geta tekið þátt á netinu og tekið sér stafrænt kaffihlé á meðan þeir tala norrænt tungumál að eigin vali við aðra þátttakendur.

Lýðræði framtíðarinnar

Lýðræðið stendur á krossgötum. Það reynir á traust, samfélagsvitund og lýðræðisleg þátttöku á tímum sem einkennast af upplýsingaóreiðu, skautun og stafrænum miðlum sem móta sameiginlega umræðu okkar, ekki síst hjá yngri kynslóðinni sem elst upp í upplýsingaumhverfi þar sem mörkin milli staðreynda, skoðana og blekkinga eru oft óljós. Hvernig getum við virkjað og búið næstu kynslóð undir að bera lýðræðið áfram?

Hvernig verjum við norræn gildi á borð við gegnsæi, traust og sterk samfélög – og tryggjum lýðræði framtíðarinnar? Á degi Norðurlanda 2026 beinum við sjónum að lýðræðislegu þoli og því hvernig við getum virkjað og búið næstu kynslóð undir að bera lýðræðið áfram.

Málakaffihús

Info - cafè, Hei / Hej / Hæ / Hey / Aluu / Bures!

Hei / Hej / Hæ / Hey / Aluu / Bures! 

Vertu með í sýndarkaffihúsi þar sem hægt er að æfa sig í Norðurlandamálunum með öðrum Norðurlandabúum. Átta tungumál eru í boði: finnska, sænska, norska, danska, íslenska, færeyska, grænlenska og norður-samíska.

Þátttakendum verður skipt í litla hópa með stjórnanda sem talar tungumálið og heldur samtalinu gangandi. Þú þarft ekki að tala málið reiprennandi, allir taka þátt miðað við sitt getustig. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin(n) gefst þér tækifæri til að tala málið, kynnast annarri menningu betur og hitta skemmtilegt fólk frá öllum Norðurlöndum. Þú gætir til dæmis rætt um eitthvað sem þig langar til að upplifa í öðru norrænu landi.

 

Fyrsta málakaffihúsið: Sunnudaginn 22. mars frá kl. 14 til 15 (CET)

Annað málakaffihúsið: Mánudaginn 23. mars frá kl. 18 til 19 (CET)

Viðburðir

19.–22. mars

FÆREYJAR

Norðurlandahúsið í Færeyjum býður börnum til lýðræðishátíðar.

Dagana 19. til 22. mars verður húsið undirlagt sýningum, tónleikum og skapandi smiðjum þar sem börn fá að virkja líkamann, röddina og ímyndunaraflið til að upplifa lýðræðið.

 

Þau munu smíða andeineltisvélmenni, hanna kosningaspjöld, kjósa í kjörkassa og halda kröfugöngu saman. Einnig verður ungbarnaópera, beatbox og breikdans. Þetta er hátíð þar sem listin skapar rými fyrir raddir barna og samfélag.

Grænland

GRÆNLAND

NAPA og New Arctic Kitchen leggja áherslu á mat og samfélag á degi Norðurlanda. 

Verklegar vinnustofur verða haldnar bæði 22. og 23. mars þar sem þátttakendur læra að vinna með staðbundið hráefni og búa til máltíðir sem færa fólk saman. Vinnustofurnar eru ætlaðar ferðaþjónustunni og þeim sem vilja elda fyrir samfélög og kynna grænlenskan mat á háu matreiðslustigi – án þess að gera það flókið.

 

Þátttakendum verður leiðbeint af þremur reyndum matreiðslumönnum og munu þeir vinna verkefni ásamt nemendum frá INUILI. Vinnustofunum lýkur með því að þátttakendur bjóða íbúum Nuuk upp á smakk í Katuaq að kvöldi 23. mars. 

23. mars

Ljósmyndari
Unsplash

23. mars

Finnland

FINNLAND

Í Finnlandi verður Dagur Norðurlanda haldinn hátíðlegur í Tampere þann 23. mars. Í Tampere Hall verður þátttakendum boðið til umræðna um framtíð lýðræðisins og spurt verður: Hvernig getum við tryggt að lýðræðið styrkist – en veikist ekki – í stafrænu flæði samtímans? Og hvaða vettvanga þarf til að vernda lýðræðislega umræðu?  

Síðdegis munum við heyra opnunarávarp frá Kim Berg, varaforseta Norðurlandaráðs, og kynningu á meginleitni sem mótar framtíð lýðræðisríkja frá Elinu Kiiski-Kataja, leiðandi sérfræðingi hjá Sitra. Við munum einnig heyra Paulinu Ahokas, forstjóra Tampere Hall, útskýra mikilvægi Norðurlanda sem svæðis fyrir Tampere.  

 

Í pallborðsumræðum verða Olivia Löytänen frá Norðurlandaráði ungmenna, Vilma Rimpelä, framleiðandi hjá Rare Media, Roger Penter, formaður bandalags finnskra æskulýðssamtaka og Reidar Wasenius, gervigreindarfræðingur við Aalto-háskóla.  

Að umræðunum loknum opnar Lýðræðiskaffihúsið fyrir frekari umræður og sameiginlegar hugleiðingar um framtíðina.  

Viðburðurinn stendur frá 14.00 til 16.30. Skipuleggjendur eru Norræna ráðherranefndin, Pohjola-Norden, Hanaholmen og Nordic Culture Point.  

Álandseyjar

ÁLANDSEYJAR

Á Álandseyjum verður Degi Norðurlanda fagnað með umræðum um sjónarhorn ungs fólks á lýðræði. 

Álenska þingið og norrænar stofnanir á Álandseyjum bjóða til umræðna milli ungra stjórnmálamanna og fulltrúa ungmenna um það hvernig umræður sem færast yfir á samfélagsmiðla hafa áhrif á traust ungs fólks á lýðræðislegum ferlum og hvaða lærdóm og hugmyndir ungt fólk hefur sjálft til að stuðla að jákvæðu lýðræðislegu andrúmslofti. Fyrir hádegi gefst tækifæri til að blanda geði og tengjast norrænum samtökum sem starfa á Álandseyjum.

 

Gríptu tækifærið til að mynda tengsl, kynnast norrænu samtökunum og deila reynslu þinni af núverandi samfélagsmálum frá norrænu sjónarhorni. 23. mars, frá 11 til 13. Ókeypis aðgangur og engrar skráningar krafist.

Eistland

EISTLAND

Í Eistlandi verður deginum fagnað í Tallinn í samstarfi við eistneska utanríkisráðuneytið og með heimsókn Karenar Ellemann, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar. 

Yfirskriftin er „Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja – 35 ár, árangur og framtíðarsýn“ og meðal gesta eru Margus Tsahkna, utanríkisráðherra Eistlands, Kristina Kallas, mennta- og rannsóknamálaráðherra, Kristi Raik, forstjóri Alþjóðlegrar miðstöðvar varnar- og öryggismála (ICDS), Tobias Billström, yfirmaður stefnumótunar og stjórnvaldstengsla hjá Nordic Air Defence og fyrrverandi utanríkisráðherra Svíþjóðar, og Ville Sirviö, forstjóri Norrænu stofnunarinnar um samþættingarlausnir (NIIS).

 

Fyrir Eistland hefur náið samstarf við Norðurlöndin gegnt lykilhlutverki við að efla svæðisbundið öryggi, efnahags- og samfélagsþróun, sem og gagnkvæm samskipti á sviði stafrænnar nýsköpunar, menntunar, vísinda og menningar á undanförnum áratugum.

24. mars

Ljósmyndari
Tapio Haaja / Unsplash

24. mars

Svíþjóð

SVÍÞJÓÐ

Í Svíþjóð verðu Degi Norðurlanda fagnað með viðburði í Kulturhuset í Stokkhólmi 24. mars. Þema viðburðarins er framtíð lýðræðis og ungt fólk.

Åsa Wikforss, prófessor og meðlimur sænsku akademíunnar, mun ávarpa viðburðinn og í kjölfarið fara fram pallborðsumræður um það hvernig við getum tryggt að ungt fólk í dag geti einnig búið við öflugt lýðræði í framtíðinni. Á meðal þátttakaenda verður ungt fólk af Norðurlöndum auk Heléne Björklund, formanns sænsku landsdeildarinnar í Norðurlandaráði.

 

Á viðburðinum munum við ræða hvernig við getum eflt lýðræðislegt þol, hvatt til borgaralegrar þátttöku og veitt ungu fólki verkfæri til að standa vörð um þau gildi sem einkenna norræna lýðræðislíkanið.

Viðburðurinn stendur frá 8.30 til 10.00. Skipuleggjendur eru Norðurlandaráð og Norræna ráðherranefndin.

Ísland

ÍSLAND

Á Íslandi verður Degi Norðurlanda fagnað með morgunfundi í Norræna húsinu í Reykjavík þann 24. mars. 

Á fundinum verður sjónum beint að forsendumlýðræðis á tímum þegar falsfréttir, dvínandi traust á stofnunum, skautun og vaxandi áhrif stafrænna miðla ógna þeim grunni sem samfélög okkar byggja á. Með hin sterku og traustu lýðræðisríki Norðurlanda að leiðarljósi skoðum við hvernig tæknirisar og upplýsingaflæði sem stjórnast af reikniritum móta opinbera umræðu og hvaða afleiðingar það hefur, ekki síst fyrir yngri kynslóðina.

 

Dagbjört Hákonardóttir, formaður landsdeildar Íslands í Norðurlandaráði, flytur opnunarávarp, Clement Kjersgaard, ritstjóri og þáttastjórnandi hjá Danmarksradio, flytur erindi og loks fara fram pallborðsumræður með fulltrúum frá samtökum ungs fólks, háskólasamfélaginu, úr stjórnmálalífinu og frá fjölmiðlum.

Viðburðuinn verður í streymi á LinkedIn og Norden.org.

25. mars

Ljósmyndari
Unsplash

25. mars

Noregur

NOREGUR

Í Noregi verður Degi Norðurlanda fagnað í Stórþinginu miðvikudaginn 25. mars. Þemað í ár er „Á traust undir högg að sækja – norrænt lýðræði á nýjum tímum.“

 

Þegar lýðræðið á undir högg að sækja á heimsvísu er Norðurlöndum oft haldið á lofti sem lýðræðislegu stórveldi. En hversu sterk er lýðræðishefð okkar – og hvernig varðveitum við traustið sem bindur okkur saman? Rannsakendur, hagsmunaaðilar úr borgarasamfélaginu og ungir stjórnmálamenn koma saman til að ræða um samfélag, þol og ábyrgð. Hvað þarf til að styrkja lýðræðið á nýjum tímum?

Aðrir viðburðir og upplýsingar

DANMÖRK

Vegna þingkosninga verða engir viðburðir haldnir í Danmörku. Hins vegar er lögð áhersla á eftirfarandi svið lýðræðis í sameiginlegri formennskuáætlun Danmerkur og Færeyja í Norrænu ráðherranefndinni árið 2026: 

Þrátt fyrir að norrænu velferðarsamfélögin okkar byggi að miklu leyti á trausti, þá eru nú til staðar ýmsir þættir sem reyna á bæði velferðarlíkanið og félagslega samheldni. Við verðum að tryggja að Norðurlöndin verði áfram félagslega sjálfbær og öflug. Það felur í sér að stuðla að virkri borgaravitund, þannig að fólk, þar á meðal fólk af erlendum uppruna, taki þátt í samfélögum sínum og lýðræðislegum ferlum.

 

Norrænu velferðarsamfélögin okkar byggjast að miklu leyti á trausti en nú eru til staðar ýmsir þættir sem reyna á bæði velferðarlíkanið og félagslega samheldni. Við verðum að tryggja að Norðurlöndin verði áfram félagslega sjálfbær og öflug. Það felur í sér að stuðla að virkri borgaravitund, þannig að fólk, þar á meðal fólk af erlendum uppruna, taki þátt í samfélögum sínum og lýðræðislegum ferlum. Lýðræði okkar og gildi á borð við jafnrétti og réttlæti eru kjarninn í norrænni sjálfsmynd okkar. Það má ekki breytast.“ 

9. apríl

LITHÁEN

Ráðstefna í tilefni af 35 ára afmæli skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Litháen fer fram 9. apríl 2026 í Vilníus. 

Hún ber yfirskriftina „Sameiginleg gildi, sameiginlegt öryggi Samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í 35 ár og leiðin fram á við“ og mun innihalda erindi og umræður um framtíð norræns-baltnesks samstarfs, viðnámsþrótt svæðisins og viðbrögð við rangupplýsingum.

 

Meðal ræðumanna eru H.E. Dalia Grybauskaitė, Kęstutis Budrys, utanríkisráðherra Litháens, Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar og Ville Väyrynen, forseti Norðurlandaráðs, ásamt öðrum fulltrúum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.

Fundinum verður streymt.  

Norðurlandaráð á Degi Norðurlanda

Nánari upplýsingar væntanlegar

Streymi

Streymi

Sumir viðburðir verða í streymi. Streymi verður aðgengilegt bráðlega.

Verkfærakista fyrir sendiráð og sendiskrifstofur

Verkfærakista fyrir sendiráð og sendiskrifstofur

Degi Norðurlanda er einnig fagnað víðar en á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndunum.

Kynntu þér verkfærakistuna okkar og sæktu tilbúið myndefni á ýmsum sniðum til að styðja við hátíðarhöld á Degi Norðurlanda og kynningar erlendis.

Helsingforssamningurinn

Helsingforssamningurinn – oft nefndur norræna stjórnarskráin

Á Degi Norðurlanda fögnum við norrænu samstarfi á milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar, auk Færeyja, Grænlands og Álandseyja.

Þetta samstarf varð formlegt með Helsingforssamningnum, sem almennt er þekktur sem stjórnarskrá Norðurlanda. Samningurinn var undirritaður 23. mars 1962 og tók gildi 1. júlí sama ár. Eftir seinni heimsstyrjöldina var komið á formlegu samstarfi milli Norðurlandanna með það að markmiði að skapa öryggi og viðhalda lýðræði og friði þeirra á milli.

 

Samstarfið hefur þróast í gegnum árin og í dag nær það til margra málefnasviða og er markmiðið að Norðurlönd verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims árið 2030.

Samningurinn

Thumbnail
29.06.18

Helsingforsavtalet

Publications number:
2018:717
09.04.24

Oppdatering av Helsingforsavtalen

Publications number:
2024:711

Hafa samband

Hafa samband

Danmörk

Sara Kolka
sarkol@norden.org

 

Noregur

Camilla Kullberg
camkul@norden.org 

 

Svíþjóð

Matts Lindqvist

matlin@norden.org 

 

Finnland/Álandseyjar

Anna Starkmann

annsta@norden.org 

 

Ísland

Silja Elvarsdóttir

silja@nordichouse.is

 

Grænland

Susanne Andreasen

susanne@napa.gl

 

Færeyjar

Gunn Hernes

gunn@nlh.fo

 

Eistland

Mari Laikre
mari.laikre@norden.ee

 

Litháen

Kornelija Kunigonytė
kornelija@norden.lt 

 

Lettland

Anita Miruskina 

anita.miruskina@norden.lv

 

Norðurlandaráð

Miriam Andrea Fottland
mirfot@norden.org