Euphoria Film – Finnland

Euphirafilm
Ljósmyndari
norden.org
Listaverk í hæsta gæðaflokki geta vakið fólk til umhugsunar um vistvá

Euphoria Film hlýtur tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Virpi Suutari og Martti Suorsalo eru eigendur hlutafélagsins Euphoria Film og ástsælir listamenn í Finnlandi. Þau trúa því að fólk geti aðeins raunverulega skilið vísindaleg málefni ef listin fær að standa við hlið vísindanna. List sem vakið geti fólk til umhugsunar og hvatt til samkenndar með umhverfinu og öðrum tegundum. Að þeirra mati nægir ekki aðeins að hafa og breiða út vísindalega þekkingu. Kvikmyndir og leiksýningar Euphoria Film varpa ljósi á mismunandi sjónarhorn, gildi, ágreiningsefni og þörf fyrir lausnir til að standa vörð um líffræðilega fjölbreytni, vistkerfi og skóga.  

Heimildarmyndin Havumetsän lapset (Börn barrskógarins) fjallar um skógaraktívisma, nýju grasrótarhreyfinguna Metsäliike („Skógarhreyfinguna“) og samspil skógariðnaðarins og aðgerðasinna á sviðinu. Myndin varpar ljósi á þær samfélagslegu formgerðir og valdatengsl sem tengjast skógariðnaðinum. Hún birtir ekki neikvæða og vonlausa mynd af framtíðinni en hvetur almenning þess í stað til að beita gagnrýnni hugsun og takast á við málefni skóga og líffræðilegrar fjölbreytni af alvöru. 22 þúsund hafa séð myndina í kvikmyndahúsum, mörg hundruð í sjónvarpi og einnig hafa ótal nemendur horft á hana í skólum þar sem myndin hefur verið sýnd og rædd. Að auki hefur hún notið velgengni á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum, meðal annars á Norðurlöndum. 

Leiksýningin Starman, sem varð til vegna innblásturs frá myndinni, geymir hugleiðingar um samband mannfólksins við náttúruna. Sýningar hafa farið fram í leikhústjöldum og leikhúsum um allt Finnland og hefur verið uppselt á þær.  

Vinnan heldur áfram í væntanlegri kvikmynd sem fjallar um tengslin milli friðaðrar skelfisktegundar og skógræktar. 

Hvernig getum við aðstoðað þig?