Norræni vinnuhópurinn um netglæpi - ráðuneytisstig

Norræni vinnuhópurinn um samstarf við netþjónustuveitendur í baráttunni gegn netglæpum samanstendur af fulltrúum frá lögregluyfirvöldum í norrænu löndunum og, eftir þörfum, fulltrúum saksóknaraembættanna.

 

Hópurinn samhæfir samstarf norrænu landanna við veitendur efnisþjónustu á netinu, þar á meðal fjarskiptafyrirtæki og samfélagsmiðla, með það að markmiði að efla baráttuna gegn netglæpum.  Hópurinn skal jafnframt vera vettvangur fyrir upplýsingaskipti og þekkingarmiðlun og stuðla að þróun og endurbótum á verklagsreglum við öflun stafrænna sönnunargagna.

 

Hópurinn getur boðið netþjónustuaðilum á Norðurlöndum að taka þátt í starfi sínu.