Helgidagar á Íslandi

Hér er að finna upplýsingar um helgidaga á Íslandi og aðra íslenska merkisdaga.

Helgidagar eru svo til þeir sömu á öllum Norðurlöndum. Þó þarf að hafa í huga að skírdagur, annar dagur páska og annar í hvítasunnu eru helgidagar á Íslandi, ólíkt því sem er sums staðar á Norðurlöndum. 

Helgidagar á Íslandi

Alla jafna eiga starfsmenn á flestum vinnustöðum frí á helgidögum:

  • 1. janúar: Nýársdagur
  • Mars–apríl: Páskar: Skírdagur, föstudagurinn langi, páskadagur og annar í páskum. Páskadagur getur fyrst verið 22. mars og síðast 25. apríl
  • Apríl: Sumardagurinn fyrsti er alltaf á fyrsta fimmtudegi eftir 18. apríl. 
  • Apríl – júní: Uppstigningardagur. Er 40 dögum eftir páskadag, alltaf á fimmtudegi, getur fyrst verið 30. apríl og síðast 3. Júní
  • Maí: Fyrsti maí – verkalýðsdagurinn
  • Maí–júní: Hvítasunnudagur og annar í hvítasunnu. Hvítasunnudagur er sjöundi sunnudagur eftir páska, getur fyrst verið 10. maí og síðast 13. Júní
  • Júní: 17. júní – Þjóðhátíðardagur Íslands
  • Ágúst: Frídagur verslunarmanna – Fyrsti mánudagur í ágústmánuði
  • Desember: 24. desember (frá kl. 13), 25. desember – Jóladagur, 26. desember - Annar í jólum og 31. desember (frá kl. 13) - Gamlársdagur

Það er mismunandi hvaða verslanir eru opnar þessa daga, en vanalega er flest lokað á Nýársdag, föstudaginn langa, 24. og 31. desember (eftir kl 13) og 25-26. desember. 

Aðrir hátíðis -og merkisdagar á Íslandi

  • 6. janúar: Þrettándinn – síðasti dagur jóla, víðsvegar eru haldnar brennur og síðustu flugeldunum skotið upp.
  • Janúar: Bóndadagur, upphaf Þorra, alltaf á föstudegi í 13 viku vetrar samkvæmt gömlu íslensku mánuðunum, ber yfirleitt upp 19-25. janúar 
  • Febrúar: Konudagurinn, upphaf Góu, ber upp á sunnudegi á milli 18-25. febrúar 
  • Febrúar–mars: Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur, Bolludagurinn er alltaf á mánudegi 7 vikum fyrir páska, þá eru borðaðar rjómabollur. Sprengidagur kemur fast á eftir á þriðjudeginum og þá er saltkjöt og baunir á borðum landsmanna. Öskudagur er síðastur í röðinni á miðvikudeginum, þá klæða börn sig í grímubúninga, slá köttinn úr tunnunni og syngja fyrir góðgæti í verslunum.
  • Mars: Kváradagurinn eða kynsegindagurinn, upphaf einmánaðar sem ber upp á milli 20-26. mars
  • 23. mars: Dagur Norðurlanda
  • Annar sunnudagur í maí: Mæðradagurinn í Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi. Í Noregi er mæðradagur annan sunnudag í febrúar og í Svíþjóð síðasta sunnudaginn í maí
  • 9. maí: Evrópudagurinn
  • 1. júní: Sjómannadagurinn
  • 23. júní: Jónsmessunótt
  • Ágúst: Reykjavík Pride og Menningarnótt
  • 23. september: Vestnorræni dagurinn
  • Október: Fyrsti vetrardagur, ber upp 21-27. október
  • Nóvember: Feðradagur, ber upp á öðrum sunnudegi í nóvember
  • 16. nóvember: Dagur íslenskrar tungu, haldinn á afmælisdegi Jónasar Hallgrímssonar skálds
  • 1. desember: Fullveldisdagurinn

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.