Norræni sérfræðingahópurinn um refsirétt

Norræni sérfræðihópurinn um refsirétt samanstendur af fulltrúum sem bera ábyrgð á refsirétti og réttarfarssviði í hverju norrænu landi.

Hópurinn skal styrkja norrænt samstarf á sviði refsiréttar og stuðla að reynslumiðlun um viðeigandi málefni. Hópurinn skiptir á reynslu og vinnur saman að málum sem varða löggjafarverkefni, tiltekin mál af lagalegum eða pólitískum toga, auk þess sem hann ræðir og samhæfir afstöðu norrænu landanna í alþjóðlegu samhengi.