Norrænn vinnuhópur um netglæpi – samstarf við þjónustuveitendur (SPOC)

Norræni vinnuhópurinn gegn netglæpum á ráðuneytisstigi samanstendur af fulltrúum frá landsráðuneytum sem bera ábyrgð á forvörnum og baráttunni gegn netglæpum.

Hópurinn miðlar reynslu af stefnumótunarvinnu ráðuneytanna gegn netglæpum, hefur stöðug upplýsingaskipti, skipuleggur þverþjóðlegt samstarf gegn netglæpum, m.a. með því að samhæfa vinnu landanna þegar kemur að löggjafarverkefnum, rannsóknum eða öðru starfi. Að auki styður hópurinn starfsemi framkvæmdaraðila í norrænu löndunum og samstarf þeirra á milli.  Þessir aðilar geta verið boðaðir á fundi vinnuhópsins til að ræða viðfangsefni sem hafa norræna skírskotun.