Norræn samstarfsáætlun um jafnrétti og hinsegin málefni 2025–2030
Upplýsingar
Útgáfudagur
Lýsing
Norðurlönd eru komin langt í vinnunni að jafnrétti kynjanna og réttindum til handa hinsegin fólki með jafnt löggjöf sem pólitískum aðgerðum. Enn er þó langt í land áður en öll, óháð kyni, hafa sömu tækifæri til þess að hafa áhrif og móta eigið líf og taka þátt í þróun samfélagsins á jafnréttisgrundvelli. Jafnframt eru enn til staðar áskoranir sem leysa verður úr áður en hinsegin fólk á Norðurlöndum nýtur sömu réttinda og tækifæra og aðrir íbúar. Í samstarfsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um jafnrétti og hinsegin mál, MR-JÄM, er pólitískum áherslum og markmiðum fyrir tímabilið 2025–2030 lýst ásamt tengingu þeirra við framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir árið 2030.
Útgáfunúmer
2024:732