Að kynna Norðurlönd og skapa þeim stöðu á alþjóðavettvangi
Með samræmdum lykilskilaboðum og sameiginlegri ímynd vill Norræna ráðherranefndin efla vitund um norræn gildi og lausnir á heimsvísu.
Með samræmdum lykilskilaboðum og sameiginlegri ímynd vill Norræna ráðherranefndin efla vitund um norræn gildi og lausnir á heimsvísu.
Áætluninni um kynningu Norðurlanda er ætlað að efla rödd Norðurlanda og norræna nálgun á alþjóðavettvangi.
Með samnorrænni ímynd dregur áætlunin fram það sem sameinar svæðið, sameiginlegt sjónarhorn sem á rætur í grundvallargildum, menningu og sameiginlegri sögu.
Við vinnum náið með norrænum sendiráðum og sendiskrifstofum sem leika mikilvægt hlutverk í því að koma rödd Norðurlanda á framfæri á alþjóðavettvangi.
Samstarfsáætlun norrænna sendiráða styður samstarf milli norrænna sendiráða og sendiskrifstofa Danmerkur, Færeyja, Finnlands, Grænlands, Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Álandseyja utan Norðurlanda.
Verkefnið „Profiling and Positioning of the Nordic Region“ („Að kynna Norðurlönd og skapa þeim stöðu“) heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, en efnt var til þess að beiðni norrænu samstarfsráðherranna.
Áætlunin tengist og styður við samstarfsáætlun samstarfsráðherra Norðurlanda, MR-SAM, fyrir árin 2025–2030.
Ráðgjafarhópur
Í ráðgjafahópi um verkefnið sitja sérfræðingar í ríkjasamskiptum og fulltrúar ráðuneyta, samtaka atvinnulífs og ferðamálaráða á Norðurlöndum.
Hafðu samband við profiling@norden.org
Ida Croff
verkefnisstjóri
Josefine Carstad
aðalráðgjafi/samskipti