Skipulag verkefnisins „International Profiling and Positioning of the Nordic Region“

Skulptur Britt Smelvær
Ljósmyndari
Oddleiv Apneseth/norden.org
Verkefnið „Profiling and Positioning of the Nordic Region“ („Að kynna Norðurlönd og skapa þeim stöðu“) heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, en efnt var til þess að beiðni norrænu samstarfsráðherranna.

Sviðsstjóri samskiptasviðs Norrænu ráðherranefndarinnar hefur umsjón með yfirstandandi starfi innan verkefnisins. Stefnumótun og samræming verkefnisins er hins vegar í höndum verkefnisstjóra. 

Ráðgjafarhópur

Í ráðgjafahópi um verkefnið sitja sérfræðingar í ríkjasamskiptum og fulltrúar ráðuneyta, samtaka atvinnulífs og ferðamálaráða á Norðurlöndum. Auk þess að sinna ráðgjafarhlutverki á hópurinn að sjá Norrænu ráðherranefndinni fyrir upplýsingum um og þekkingu á verkefnum og aðgerðum sem ætlað er að kynna Norðurlöndin. 

Hópurinn á enn fremur að haga upplýsingagjöf sinni þannig að tryggt verði að norrænu löndin og Norræna ráðherranefndin geti samhæft starfsemi sína við aðra aðila og þannig varnað því að aðgerðir skarist. Hópurinn hefur ráðgefandi hlutverk við mótun, framkvæmd og eftirfylgni aðgerða og verkefna.