Yfirlýsing um málstefnu

10.09.24 | Yfirlýsing
Tungumálið eða tungumálin sem við tölum skipta miklu fyrir sjálfsmynd okkar og hvernig annað fólk skilur okkur og við það. Tungumálið ásamt menningunni bera sögu okkar og eru mikilvægustu sameiginlegu samfélagsinnviðir okkar.

Sem norrænt samfélag viljum við varðveita, nota og þróa öll tungumálin okkar og tungumálasamfélag okkar. Helsingforssamningurinn kveður á um að fræðsla og menntun í skólum á Norðurlöndum skuli taka til fræðslu í tungumálum og um menningu og almennt þjóðfélagsástand á hinum Norðurlöndunum, þar með töldum Álandseyjum, Færeyjum og Grænlandi. Við viljum efla sameiginlega þekkingu og skilning á þeim tungumálum sem töluð eru, einkum skilning á skandinavísku tungumálunum. Ýta skal undir áhuga barna og unglinga á norrænum tungumálum og norrænu samstarfi. Það eru þau sem munu halda samfélagi Norðurlandanna áfram.

Yfirlýsingu þessari er ætlað að vera undirstaða fyrir almenna, heildstæða og virka tungumálastefnu til langs tíma.

Tengiliður