Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2022: Kynnist hinum tilnefndu í Kino Regina

31.10.22 | Viðburður
Meet the nominnes of the Nordic Council Film Prize 2022
Ljósmyndari
norden.org
Við bjóðum ykkur velkomin til pallborðsumræðna með hinum tilnefndu til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 31. október í Helsingfors.

Upplýsingar

Dagsetning
31.10.2022
Tími
16:30 - 17:30
Staðsetning

Kino Regina / Oodi
Töölönlahdenkatu 4
00099 Helsinki
Finnland

Gerð
Viðburður

Norrænu kvikmyndirnar sem tilnefndar eru til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2022 verða kynntar í Helsingfors daginn fyrir verðlaunahátíðina. Takið þátt í umræðum með kvikmyndagerðarfólkinu um tilurð myndanna. Hver var hugmyndin upphaflega og hvernig var ferlið að þessum einstöku myndum sem snerta við fólki þvert á landamæri? Um hvað snýst norræn kvikmyndagerð í dag og hvernig tryggjum við líf í kvikmyndagerð okkar í framtíðinni?

Fundarstjóri verður Liselott Forsman, framkvæmdastjóri norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins, og mun hún setja viðburðinn ásamt formanni dómnefndarinnar, Mikaelu Westerlund, framkvæmdastjóra Walhalla ry.

Tilnefningar ársins 2022:

VOLAÐA LAND

  • Leikstjóri: Hlynur Pálmason
  • Handritshöfundur: Hlynur Pálmason
  • Framleiðendur: Katrin Pors, Mikkel Jersin, Eva Jakobsen, Anton Máni Svansson, Snowglobe, Join Motion Pictures

BLINDI MAÐURINN SEM VILDI EKKI SJÁ TITANIC

  • Leikstjóri: Teemu Nikki
  • Handritshöfundur: Teemu Nikki
  • Framleiðandi: Jani Pösö, It’s Alive Films

DÝRIÐ

  • Leikstjóri: Valdimar Jóhannsson
  • Handritshöfundur: Valdimar Jóhannsson, Sjón
  • Framleiðendur: Hrönn Kristinsdóttir, Sara Nassim, Go to Sheep

VERSTA MANNESKJA Í HEIMI

  • Leikstjóri: Joachim Trier
  • Handritshöfundar: Eskil Vogt, Joachim Trier
  • Framleiðendur: Thomas Robsahm, Andrea Berentsen Ottmar, Oslo Pictures

CLARA SOLA

  • Leikstjóri: Nathalie Ávarez Mesén
  • Handritshöfundar: Nathalie Ávarez Mesén, Maria Camila Arias
  • Framleiðandi: Nima Yousefi, Hobab

Tilkynnt verður um sigurvegarann daginn eftir málþingið. Verðlaunahátíðin fer fram í Musikhuset að kvöldi 1. nóvember og í kjölfarið verður móttaka í boði finnsku ríkisstjórnarinnar. Sem formennskuland í Norðurlandaráði í ár heldur Finnland verðlaunahátíð ársins en þar verður 70 ára afmæli Norðurlandaráðs fagnað. Verðlaunahátíðin verður send út í öllum norrænu löndunum.