Norræn ráðstefna um erfðaauðlindir – tækifæri og brýn nauðsyn

11.12.24 | Viðburður
alt=""
Ljósmyndari
Mads Jensen / Ritzau Scanpix
Vertu með okkur á ráðstefnu um hlutverk erfðaauðlinda í sjálfbærri þróun. Fjallað verður um nýjustu stefnuþróun á alþjóðavísu, metnað Norðurlandanna og mismunandi lausnir sem byggja á erfðaauðlindum. Fáðu innblástur af framtíðarsýn um hvernig þessar auðlindir geta hjálpað okkur að skapa sjálfbærara og viðnámsþolnara samfélag.

Upplýsingar

Dagsetning
11.12.2024
Tími
09:00 - 16:30
Staðsetning

Malmö Arena Hotel
Malmö
Svíþjóð

Gerð
Ráðstefna

Erfðaauðlindir eru nauðsynlegar lífi manna á jörðu. Tré, plöntur, fiskar og húsdýr, örverur, bakteríur og sveppir eru lifandi auðlindir náttúrunnar sem færa okkur mat á diskinn, timbur fyrir húsin, föt til að klæðast, lyf, afþreyingu og líftækni.

En gleymum ekki að erfðaauðlindir eru einnig verkfæri. Verkfæri sem, ef þau eru notuð með sjálfbærum hætti, geta hjálpað okkur að aðlagast loftlagsvandanum, þróa ný matvæli, auka viðnámsþol í landbúnaði, greiða leiðina fyrir nýjum líftæknilausnum og ryðja brautina fyrir græn umskipti.

Ókeypis er að sækja ráðstefnuna en skráðir þátttakendur þurfa að greiða 500 sænskra króna gjald ef þeir mæta ekki.

Tengiliður viðburðarins

Sara Landqvist, Norrænu auðlindastofnuninni

sara.landqvist@nordgen.org