Réttindi hinsegin fólks á norðurslóðum

18.10.24 | Viðburður
Ljósmyndari
Lars Dareberg / norden.org
Norðurlandaráð býður til sérstaks fundar á ráðstefnunni Arctic Circle sem haldin er í Reykjavík til að ræða flókna tilveru og veruleika hinsegin fólks á norðurslóðum. Hvernig getum við tekið höndum saman til að verja réttindi hinsegin fólks og skapa þeim völl á norðurslóðum og stuðlað að jafnrétti, skapað öruggt umhverfi og veitt þeim viðurkenningu í samfélaginu?

Upplýsingar

Dagsetning
18.10.2024
Tími
18:20 - 19:15
Staðsetning

Artic Circle Assembly
Harpa, Skarðsheiði, Third Level
Reykjavik
Ísland

Gerð
Viðburður

Á síðustu árum höfum við orðið vitni að bakslagi í lýðræðisþróun og málefnum jaðarsettra og minnihlutahópa víða um heim. Öfgahyggja og ólýðræðislegir stjórnarhættir hafa haft í för með sér takmörkun á réttindum tiltekinna samfélagshópa, jafnan þeirra sem minnst mega sín. Undir formennsku Íslands árið 2024 hefur áherslan verið á að efla samstarf Norðurlanda í málefnum er varða jafnrétti, jaðarhópa og minnihlutahópa, sérstaklega á fámennum jaðarsvæðunum.

Norðurlandaráð býður til þessa hliðarfundar í samstarfi við Vestnorræna ráðið og þingmannanefndarinnar um norðurskautsmál.

 

Fyrirlesarar:

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra / samstarfsráðherra Norðurlanda

Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ‘78

Lotte Fast Carlsen, varaformaður Nordic Safe Cities

Í pallborði:

Oddný G. Harðardóttir varaformaður Norðurlandaráðs, Aaja Chemnitz, formaður þingmannanefndarinnar um norðurskautsmál og Steinunn Þóra Árnadóttir varaformaður Vestnorræna ráðsins.

Fundarstjóri: Hjalti Ómar Ágústsson sérfræðingur á Jafnréttisstofu

Tengiliður