Einkatryggingar í Noregi
Hvaða tryggingar eru lögbundnar í Noregi?
Flestar einkatryggingar í Noregi eru valfrjálsar en sumar tryggingar eru lögbundnar. Þetta eru:
- Ábyrgðartrygging fyrir ökutæki:
Allir sem eiga vélknúin ökutæki í Noregi verða að hafa ábyrgðartryggingu. Tryggingin bætir tjón sem þú veldur öðrum einstaklingum, ökutækjum eða eignum í umferðinni. - Atvinnuslysatrygging fyrir vinnuveitendur:
Öllum vinnuveitendum er skylt að hafa atvinnuslysatryggingu fyrir starfsmenn sína. Tryggingin bætir slys og veikindi sem koma upp á vinnutíma.
Aðrar algengar einkatryggingar í Noregi
Hér er yfirlit yfir algengustu valfrjálsu tryggingarnar:
- Innbústygging:
Bætir tjón eða tap innbús og lausamuna á heimili vegna bruna, þjófnaðar, vatnstjóns eða náttúruhamfara. - Ferðatrygging:
Bætir tjón vegna sjúkdóms, slyss, þjófnaðar eða afbókunar ferðar, bæði í Noregi og erlendis. - Bifreiðatrygging (valfrjáls hluti umfram ábyrgð):
Auk lögbundinnar ábyrgðartryggingar er hægt að velja kaskó eða kaskó að hluta, sem veitir aukna vernd vegna tjóns á eigin ökutæki. - Húsnæðistrygging:
Bætir tjón á sjálfu húsnæðinu vegna bruna, vatnstjóns, náttúruhamfara o.þ.h. - Barna- og slysatrygging:
Tryggir fjárhagslegan stuðning vegna sjúkdóms, slyss eða fötlunar barns. - Líftrygging:
Tryggir eftirlifendum fjárhagslegan stuðning við dauðsfall. - Örorkutrygging:
Tryggir greiðslur ef þú verður óvinnufær.
Hvert skal leita með spurningar um tryggingar?
Þú getur haft samband við tryggingafélög til að fá upplýsingar um þær tryggingar sem þau bjóða, verð, kjör o.s.frv.
Margir vinnuveitendur bjóða upp á einkatryggingar. Kannaðu hjá vinnuveitanda þínum hvort hann bjóði upp á einhverjar tryggingar.
Einnig er algengt að ódýrari tryggingar séu í boði hjá stéttarfélagi. Stéttarfélögin hafa oft hagstæða samninga við tryggingafélög.
Þú getur lesið meira um hvað er gott að hafa í huga við kaup á tryggingum hjá norska neytendaráðinu, Forbrukerrådet.
Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.
ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.