Einkunnaskalinn í norska menntakerfinu

Hér geturðu lesið um einkunnakvarðann í Noregi og hvernig hægt er að umreikna útlenskar einkunnir í norskar.

Einkunnakvarðinn í grunnskólum og framhaldsskólum

Í grunnskólum (í 8. til 10. bekk á unglingastigi) og framhaldsskólum í Noregi eru gefnar einkunnir frá 1 til 6. Samkvæmt þessum kvarða er námsframmistaða nemenda metin samkvæmt eftirfarandi:

  • 6: Ágætisfærni í faginu
  • 5: Mjög góð færni í faginu
  • 4: Góð færni í faginu
  • 3: Nokkuð góð færni í faginu
  • 2: Lítil færni í faginu, en nægilegt til að standast
  • 1: Mjög lítil færni í faginu. Nemandinn hefur náð markmiðum um færni í faginu

Þessi einkunnakvarði er notaður til að gefa einkunnir fyrir stöðupróf, símat og lokapróf. Kvarðanum er ætlað að gefa almennt mat á þekkingu og færni nemenda og gefa þeim upplýsingar um hvar þeir standa í tengslum við námsmarkmið.

Mat á hegðun 

Í öllum skólum eiga að gilda skólareglur til að tryggja bæði nemendum og starfsfólki gott umhverfi og nemendur þurfa að þekkja reglurnar. Nemendur fá einkunnir fyrir hegðun sem segja fyrir um hversu vel þeir hafa fylgt skólareglunum. Nemendur fá upplýsingar um hver grundvöllurinn er og til hvers er litið í mati á hegðun. 

Eftirfarandi einkunnir eru gefnar fyrir hegðun:

  • Gott (G)
  • Nokkuð gott (Ng)
  • Ekki svo gott (Lg)

Þessar einkunnir hafa ekki vægi til að ljúka námi en vinnuveitendur líta þó oft til þeirra. 

Einkunnakvarðinn í æðri menntun

Í æðri menntun í Noregi, fagskólum, háskólum og tækniháskólum er notaður einkunnakvarði frá A til F:

  • A: Framúrskarandi árangur, vel yfir meðaltali.
  • B: Mjög góður árangur, yfir meðaltali.
  • C: Góður árangur, sem er við meðaltal.
  • D: Nokkuð góður árangur, undir meðaltali, en viðunandi.
  • E: Nægilegur árangur til að standast próf, en með veikleikum.
  • F: Fall, árangur uppfyllir ekki lágmarkskröfur.

Þessi kvarði fylgir evrópska ECTS-kerfinu (European Credit Transfer and Accumulation System), sem einfaldar samanburð einkunna milli landa.

Umreikningur erlendra einkunna yfir í norskar

Hafðu samband við menntastofnunina í Noregi sem þú hefur áhuga á að stunda nám við til að fá nánari upplýsingar um umreikning einkunna þinna úr fyrra námi í öðru landi. 

Hjá Samordna opptak má finna upplýsingar um mat á erlendri framhaldsskólamenntun.

Hjá stjórnsýslusviði æðri menntunar og fagkunnáttu (HK-dir) er að finna upplýsingar um viðurkenningu erlendrar æðri menntunar, náms við erlenda fagskóla og erlendrar starfsmenntunar.

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.