Heilbrigðiskerfið í Danmörku

Hér er að finna upplýsingar um heilbrigðiskerfið í Danmörku og hvernig hægt er að hafa samband við lækni, læknavakt, bráðamóttöku og aðra meðferðaraðila í Danmörku.

Á síðunni „Réttur til heilbrigðisþjónustu í Danmörku“ má lesa um rétt til meðferðar í Danmörku.

Hvert er hægt að snúa sér ef maður verður veikur í Danmörku?

Heimilislæknir

Ef þú býrð eða dvelst í Danmörku og veikist áttu að hafa samband við heimilislækni.

Einstaklingar í sjúkratryggingarflokki 1 sem skráðir eru í þjóðskrá í Danmörku eiga að fá heimilislækni.

Heimilislæknirinn sér til þess að þú fáir þá læknismeðferð sem þú þarft eða vísar þér áfram til sérfræðilæknis eða sjúkrahúss.

Læknavakt

Utan afgreiðslutíma læknisins þíns er hægt að hringja í læknavakt. Læknavaktin metur hvort þú þurfir að mæta á móttöku læknavaktarinnar. Í sérstökum tilvikum kemur læknirinn heim til þín.

Samskiptaupplýsingar læknavakta eftir héruðum er að finna á borger.dk.

Bráðamóttaka (slysavarðstofa)

Bráðamóttakan sinnir alvarlegum meiðslum sem eru fyrir utan verksvið heimilislæknisins, til dæmis beinbrotum eða brunameiðslum.

Á bráðamóttökunni er alvarlegustu meiðslunum sinnt fyrst. Því má búast við biðtíma.

Yfirleitt þarf að hringja á undan sér áður en maður kemur á bráðamóttöku eða slysavarðstofu. Ef þú þarft bráða aðstoð vegna lífshættulegs sjúkdóms eða meiðsla áttu að hringja í 112.

Ef þú þarft á sjúkrahússmeðferð að halda sem ekki er bráð, þarftu að hafa tilvísun frá lækni.

Samskiptaupplýsingar fyrir bráðamóttökur og slysavarðstofur er að finna á borger.dk. 

Finna heilbrigðisþjónustuaðila og -stofur í Danmörku

Á sundhed.dk er hægt að finna upplýsingar um danska heilbrigðiskerfið ásamt upplýsingum um heimilislækna, sérfræðinga, sjúkraþjálfara, tannlækna, opinberra sjúkrahúsa, einkastofa, apóteka o.fl.

Athugaðu að opinber niðurgreiðsla fæst aðeins fyrir tilteknar meðferðir og að meðferðaraðilinn þarf í sumum tilvikum að vera með samning við svæðisbundin yfirvöld. Það getur einnig haft þýðingu fyrir það hvort meðferðin fáist greidd með bláa evrópska sjúkratryggingakortinu.

Hvenær þarf að greiða fyrir læknismeðferð í Danmörku?

Þegar þú nýtur opinberra sjúkratrygginga í öðru norrænu landi, eða ef þú flytur til Danmerkur og færð þar sjúkratryggingar, eru læknisheimsóknir og meðferð á opinberum sjúkrahúsum að jafnaði án eigin greiðslu. Þú kannt þó að þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði. Á öðrum sviðum er eigin greiðsluþátttaka, til dæmis fyrir sjúkraþjálfun eða tannlæknaþjónustu fyrir fullorðna.

Þú þarft að geta fært sönnur á rétt þinn til þess að fá heilbrigðisþjónustu samkvæmt opinberum dönskum sjúkratryggingum. Það hvaða gögnum þarf að framvísa fer eftir því hvort þú býrð eða starfar í Danmörku eða dvelst þar tímabundið. Þú getur til dæmis fært sönnur á rétt þinn með:

  • Ef þú býrð í Danmörku: sjúkratryggingaskírteinið þitt
  • Ef þú býrð erlendis og starfar í Danmörku: sérstakt sjúkratryggingaskírteini
  • Ef þú býrð í öðru norrænu landi og dvelst tímabundið í Danmörku: skilríki og staðfestingu á búsetu Einnig geturðu framvísað ESB-sjúkratryggingaskírteini.
  • Ef þú ert danskur lífeyrisþegi sem býr erlendis eða nýtur trygginga í gegnum fjölskyldumeðlim og Danmörk greiðir sjúkratrygginguna: ESB-sjúkratryggingaskírteini sem gefið er út í Danmörku og upplýsingar um sjúkratryggingastöðu þína
  • Ef þú býrð í ESB-/EES-landi, Sviss eða Bretlandi: ESB-sjúkratryggingaskírteini eða breskt sjúkratryggingaskírteini.

Heimilislæknar og opinber sjúkrahús

Einstaklingar greiða ekki fyrir læknisþjónustu hjá heimilislæknum. Þó þarf maður að greiða sjálfur fyrir ákveðnar tegundir þjónustu, svo sem bólusetningar og læknisvottorð. Bólusetningar innan danska bólusetningarkerfisins fyrir börn eru alltaf endurgjaldslausar.

Ekki þarf að greiða fyrir meðferð á opinberum sjúkrahúsum ef maður hefur tilvísun. Ekki þarf tilvísun fyrir bráðameðferð á sjúkrahúsi.

Tannlækningar fyrir börn, ungt fólk og fullorðna

Tannlækningar eru ókeypis fyrir börn og ungmenni yngri en 18 ára. Ungt fólk sem er fætt eftir 31. desember 2003 nýtur ókeypis tannlækninga þar til það verður 22 ára.

Sérfræðilæknar og aðrir heilbrigðisþjónustuaðilar

Ekki þarf að greiða fyrir meðferð hjá sérfræðingum ef maður hefur tilvísun. Þó þarf ekki tilvísun til að fá endurgjaldslausa meðferð hjá háls-, nef- og eyrnasérfræðingum eða augnlæknum. Ekki þarf tilvísun ef þú ert í tryggingaflokki 2.

Þótt maður hafi tilvísun til t.d. hnykkjara, fótasérfræðings, sálfræðings eða sjúkraþjálfara þarf maður að greiða hluta kostnaðarins sjálfur.

Nánari upplýsingar um tryggingaflokka á vefsíðunni borger.dk.

Samband við yfirvöld
Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.