Helgidagar í Færeyjum

Hér er að finna upplýsingar um helgidaga í Færeyjum, lögbundna lokunardaga, frídaga eftir samkomulagi og aðra færeyska merkisdaga.

Helgidagar eru svo til þeir sömu á öllum Norðurlöndum. Þó þarf að hafa í huga að skírdagur, annar dagur páska, stóri bænadagur og annar í hvítasunnu eru helgidagar í Færeyjum, ólíkt því sem er sums staðar á Norðurlöndum. Stjórnarskrárdagurinn (grundlovsdag) er ekki helgidagur, en er hálfur frídagur hjá flestum. Margar verslanir eru lokaðar og margir eiga frí.

Hvaða dagar eru helgidagar í Færeyjum?

Margt starfsfólk á frí á helgidögum en það ræðst af ráðningarsambandi, ráðningarsamningi, starfsmannahandbók eða kjarasamningi. Ef unnið er á helgidegi kunna að gilda sérstakar reglur um laun, álag eða frí á móti vinnu.

  • 1. janúar: Nýársdagur
  • Mars–apríl: Páskar: Skírdagur, föstudagurinn langi, páskadagur og annar í páskum. Páskadagur er í fyrsta lagi 22. mars og í síðasta lagi 25. apríl. Stóri bænadagur, sem ber upp á fjórða föstudag eftir páska.
  • Apríl–júní: Uppstigningardagur. Dagurinn er 40 dögum eftir páskadag, alltaf á fimmtudegi; í fyrsta lagi 30. apríl og í síðasta lagi 3. júní.
  • Maí–júní: Hvítasunnudagur og annar í hvítasunnu. Hvítasunnudagur er sjöundi sunnudagur eftir páska; í fyrsta lagi 10. maí og í síðasta lagi 13. júní.
  • 25. desember: Jóladagur
  • 26. desember: Annar í jólum

Hvenær þurfa verslanir að vera lokaðar í Færeyjum?

Smávöruverslanir mega alla jafna ekki hafa opið á helgidögum. Þetta á þó ekki við um allar verslanir. Til dæmis geta smærri matvöruverslanir verið undanþegnar þessu. Verslanir þurfa einnig að vera lokaðar þessa daga:

  • 24. desember: Aðfangadagur
  • 25. apríl: fánadagur; ef hann ber upp á virkan dag loka verslanir kl. 12

Getur verið frí aðra daga en helgidaga?

Sumir dagar geta verið frídagar á vinnustað þínum þótt ekki sé um helgidag að ræða. Það ræðst af samningi þínum, starfslýsingu eða samkomulagi. Oft á það við um þessa daga:

  • 1. maí: Alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins
  • 5. júní: stjórnarskrárdagur (hálfur frídagur)
  • 28. júlí: Ólavsøkuaftan (hálfur frídagur)
  • 29. júlí: Ólavsøkudagur
  • 24. desember: Aðfangadagur
  • 31. desember: Gamlársdagur

Svæðisbundnar hátíðir í Færeyjum

Í Færeyjum eru sjö svæðisbundnar hátíðir í júní og júlí.

Þetta eru almenningshátíðir þar sem fólk á öllum aldri kemur saman.

Þjóðaríþrótt Færeyinga, kappróður, fer fram á þessum hátíðum og lýkur á Ólavsøku.

Einnig er boðið upp á tívolí fyrir börn, matsölubása, fótboltaleiki, tónleika, fjöldasöng og keðjudans.

Verslanir á hverjum stað geta ákveðið að loka snemma til að taka þátt í hátíðarhöldunum.

 

Norðoyastevna í Klaksvík er fyrsta stóra hátíð sumarsins og upphaf kappróðursársins. Síðan koma Eystanstevna, Jóansøka, Fjarðastevna, Vestanstevna og Sundalagsstevna og að lokum lýkur tímabilinu með Ólavsøku í höfuðborginni Tórshavn.

Aðrar hátíðir og merkisdagar í Færeyjum

  • Febrúar–mars: föstuinngangur er sjöundi sunnudagur fyrir páskadag; í fyrsta lagi 1. febrúar og í síðasta lagi 7. mars.
  • 5. janúar: þrettándakvöld – í sumum byggðum er stiginn keðjudans.
  • 2. febrúar: kyndilmessa – lok keðjudanstímabilsins.
  • 23. mars: Dagur Norðurlanda
  • Annar sunnudagur í maí: Mæðradagurinn í Danmörku, Finnlandi, Færeyjum og á Grænlandi og Íslandi. Í Noregi er mæðradagurinn annan sunnudag í febrúar og í Svíþjóð er hann síðasta sunnudag í maí.
  • 5. júní: Feðradagurinn í Danmörku. Í Finnlandi, á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð er dagurinn haldinn hátíðlegur annan sunnudag í nóvember.

 

Nánari upplýsingar

Spurning til Info Norden

Ef þú ert með spurningu eða ef þú hefur rekist á hindrun í norrænu landi skaltu fylla út eyðublað okkar.

ATH: Ef spurningin þín varðar afgreiðslu tiltekins máls eða umsóknar eða annarra persónulegra mála skaltu hafa samband við viðkomandi yfirvald.