ChargeNordic – Heavy-Duty eTransport Alliance
Rafknúnir þungaflutningar yfir landamæri skipta sköpum fyrir efnahagslega samþættingu og tengingar á Norðurlöndum. Að tryggja viðeigandi og næga hleðsluinnviði þvert á norræn landamæri á helstu leiðum getur aukið áreiðanleika í rafvæðingu þungaflutninga, auðveldað viðskipti, dregið úr losun og bætt heildarnýtni flutningakerfisins.
ChargeNordic - Heavy-Duty eTransport Alliance er að koma upp samstarfsneti sem ryður brautina fyrir rafvæðingu þungaflutningakerfisins. Áætlunin miðar að því að koma á fót norrænum vettvangi þekkingarmiðlunar sem nýtir sameiginlega reynslu norrænu landanna af rafvæðingu léttbílaflotans til að bregðast við yfirvofandi áskorunum við rafvæðingu þungaflutningaflotans. Mikilvægur þáttur til að kanna betur er styrkur og viðnámsþol rafsamgöngukerfisins.
Áherslusvið
Að koma á fót norrænum vettvangi fyrir þekkingarmiðlun um rafvæðingu þungaflutninga og viðnámsþol kerfisins.
Að skapa öflugt tengslanet hagsmunaaðila sem vinna að því að hraða rafvæðingu vegaumferðar.
Kortlagning viðeigandi opinberra og einkarekinna hagsmunaaðila og leiðandi tilraunaverkefna á sviði rafvæðingar þungaflutninga.
Mótun stefnutillagna og samræming hugtaka sem styðja hraðari og betur samhæfða uppbyggingu hleðsluinnviða og útbreiðslu ökutækja.
Aukin vitund um bestu starfshætti og nýsköpunarlausnir þvert á landamæri og meðal hagsmunaaðila.
Þessi áætlun er hvati fyrir þekkingarmiðlun á Norðurlöndum og tryggir að innsýn og verklagi sé miðlað og það innleitt alls staðar á svæðinu. Enn fremur getur samstarfsnetið eflt samtal um mótun evrópskrar stefnu og gert norrænu löndunum kleift að vera meira samstíga í viðeigandi umræðum innan ESB.