Ráð varðandi samskiptastarf á þemaþingi Norðurlandaráðs 2025

Vilt þú stuðla að auknum áhuga á þemaþinginu? Hér er örstutt yfirlit yfir samskiptastarfið á þinginu og ráð um hvernig hægt er að ná betur til fólks. Allar myndir má nota endurgjaldslaust.

Við mælum með því að gera eftirfarandi:

1. Kynntu þér þemaþingið á vefsvæði þess

Á vefsíðu þemaþingsins er að finna hagnýtar upplýsingar, fréttir, beinar útsendingar og dagskrá þemaþingsins.

2. Notaðu myllumerkin okkar

Taktu þátt í umræðum um norræn málefni á samfélagsmiðlum með því að nota myllumerkin #nrsession, #nrpol og #nordiskråd.

3. Fylgdu reikningum okkar og merktu þá í færslum á samfélagsmiðlum

Fylgdu reikningum okkar og merktu þá í færslum á samfélagsmiðlum:

4. Deildu myndum og taktu þínar eigin myndir

Deildu þínum eigin myndum og myndskeiðum frá þinginu á Instagram og öðrum samfélagsmiðlum ásamt myllumerkjunum #nrsession, #nrpol og #nordiskråd.

Ljósmyndari á okkar vegum mun jafnframt taka myndir á þinginu. Nota má myndirnar endurgjaldslaust (ekki í atvinnuskyni) að því gefnu að ljósmyndarans sé getið (NN/norden.org). Myndirnar verða aðgengilegar frá:

5. Hugmyndir að færslum á samfélagsmiðlum

Að deila myndum er góð leið til þess að vekja athygli og skapa áhuga. Myndir frá fundum, umræðum eða stund milli stríða með öðrum þátttakendum skapa persónulegan blæ. Hér eru nokkrar hugmyndir að færslum á samfélagsmiðlum:

  1. Hugleiðingar um umræður á dagskrá þemaþingsins
    Hugleiðingar þínar um umræðurnar og þemað „Sterkari samheldni – nýir tímar í öryggis- og viðbúnaðarmálum Norðurlanda“.
  2. Mál frá fagnefndunum
    Þú gætir vakið athygli á ákveðnum málum fagnefndanna sem þú telur sérstaklega mikilvæg.
  3. Myndir frá fundum og stundum með öðrum þátttakendum
    Deildu myndum frá fundum eða stundum með öðrum þátttakendum á þemaþinginu.