70 äventyr före sjuan - Finland

Verkefnið '70 äventyr före sjuan' er tilnefnt til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026.

Verkefnið „70 ævintýri fyrir sjö ára“ býður upp á nýstárlega nálgun á umhverfisfræðslu fyrir grunnskólabörn.

Verkefnið býður börnum að kanna nærumhverfi sitt og menningu með 70 ævintýrum sem ætlað er að gera sjálfbærni áþreifanlega og áhugaverða. Í stað þess að læra einungis úr bókum læra börnin með athöfnum: með því að kanna náttúruna, hreyfa sig, fylgjast með, endurvinna og taka þátt í verkefnum með öðrum.

Hægt er að leysa verkefnin með bekkjarfélögum, vinum, foreldrum eða afa og ömmu, sem hvetur til náms milli kynslóða og dýpri skilnings á náttúru og hefðum á hverjum stað. Í gegnum sameginlega upplifunum uppgötva börnin hvað er verðmætt í umhverfi þeirra og hvað ber að vernda.

Verkefnið hvetur þannig börn til að leggja frá sé skjáinn og tengjast náttúrunni í staðinn og styrkir þannig tengsl þeirra við nærumhverfi sitt og hvetur til umhverfisverndar til langs tíma. Rannsóknir sýna að slík snemmbær tengsl byggð á reynslu eru nauðsynleg til að þróa virðingu fyrir náttúrunni, loftslagsvitund og samfélagslega ábyrgð.

Hugmyndin var þróuð í samstarfi við leiðandi finnsk menningar- og minjaverndarsamtök. Hún er aðgengileg, gjaldfrjáls og í boði á mörgum tungumálum og er hægt að aðlaga víða á Norðurlöndum og hún sýnir fram á hvernig umhverfisvitund getur hafist úr eigin ranni, eitt ævintýri í senn.