Ålands Naturskola - Åland

Ålands Naturskola hefur verið tilnefndur til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026.

Hvers vegna kúra fjöruflær? Hvað veldur því að hjartaskel í Eystrasaltinu verður svört af reiði? Með því að vekja forvitni gerir náttúruskólinn á Álandseyjum, Ålands Naturskola, náttúruvísindi áhugaverð, aðgengileg og merkingarbær fyrir börn og ungmenni.

Með útikennslu sem byggir á reynslu læra nemendur um loftslag, líffræðilega fjölbreytni og almannarétt í eigin nærumhverfi. Beint samneyti við náttúruna eykur skilning, virkni og ábyrgðartilfinningu gagnvart sjálfbærri framtíð.

Náttúruskólinn í Álandseyjum er einn af fjórum sænskumælandi náttúruskólum í Finnlandi og er rekinn af Finlands Natur & Miljö. Starfsemin gegnir mikilvægu hlutverki við að tryggja aðgengilega og inngildandi umhverfisfræðslu. Farkennsla skólans nær til allra grunnskóla og leikskóla á Álandseyjum. Kennslan er samræmd aðalnámskrá og studd með undirbúnings- og eftirfylgniathöfnum styrkja námið innan kennslustofunnar.

Starfið er mikils metið af bæði nemendum og kennurum og hefur áþreifanleg áhrif á þróun umhverfisfræðslu. Í samstarfi við Eystrasaltssjóðinn getur Náttúruskólinn í Álandseyjum einnig boðið bekkjum að taka þátt í verkefninu Östersjöfondens klasser án kostnaðar, sem veitir nemendum tækfifæri til að læra meira um hið mikilvæga lífríki hafsins.

Á marga vegu opnar náttúruskólinn í Álandseyjum dyr að heimi náttúrunnar sem börn læra að sjá með nýjum augum. Þekking umfram náttúru mannanna leggur grunn að getu til að annast hana og vernda.