Astra masseeksperiment - Danmörk

Astra fjöldatilraunin hefur verið tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2026.

Loftslags- og náttúrukrísan gerir nýjar kröfur til komandi kynslóða. Því er lykilatriði að börn og ungmenni byggi ekki einungis upp þekkingu á umhverfis- og loftslagsmálum, heldur þrói einnig með sér hæfni og hvata til að leggja sitt af mörkum til lausna. Þema ársins beinist að verkefnum sem fræða og virkja börn og ungmenni í umhverfis- og loftslagsmálum.

Með fjöldatilrauninni hefur Astra þróað nálgun þar sem börn og ungmenni læra ekki aðeins um umhverfis- og loftslagsvandamál, heldur fá einnig tækifæri til að leggja sjálf sitt af mörkum til nýrrar þekkingar á þeim.

Í 17 ár hefur Astra, landsmiðstöð náttúrufræðimenntunar, árlega virkjað meira en 30.000 börn og ungmenni í rannsóknarstörfum í gegnum fjöldatilraunina, sem er einstakt verkefni á sviði nemendadrifinna borgaravísinda þar sem nemendur taka þátt í raunverulegum rannsóknum í samstarfi við vísindafólk.

Styrkur fjöldatilraunarinnar felst í því að börn og ungmenni verða virkir þátttakendur í því að skilja og rannsaka samtímaáskoranir á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Með verklegum rannsóknum og náttúruvísindalegum aðferðum safna þau gögnum, greina niðurstöður og leggja sitt af mörkum til rannsókna sem eru nýttar bæði í vísindalegu og samfélagslegu samhengi. Fjöldatilraunin skapar þannig bæði þekkingu, hvetur til þátttöku og veitir getu til aðgerða.

Verkefnið veitir börnum og ungmennum innsýn í hvernig vísindaleg þekking verður til og er nýtt, auk þess að efla skilning þeirra á náttúru, loftslagi og sjálfbærni. Samspil rannsókna, kennslu og samfélagslegrar þátttöku hefur gert fjöldatilraunina að fyrirmynd bæði í Danmörku og á alþjóðavettvangi.

Fjöldatilraunin stuðlar að því að efla getu komandi kynslóða til að skilja og takast á við þær áskoranir í umhverfis- og loftslagsmálum sem norræn samfélög standa frammi fyrir. Á sama tíma felur aukið norrænt samstarf á vegum verkefnisins í sér mikil tækifæri til að auka vísindalæsi og umhverfisvitund barna og ungmenna þvert um Norðurlönd.