Britta Byström

Ljósmyndari
Arne Hyckenberg
Tónskáldið Britta Byström hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2026 fyrir verkið Eatnama Váibmu.

Með Eatnama Váibmu („Hjarta jarðarinnar“) frá 2025 hefur Britta Byström sett mark sitt á samtímann með fjaðurmagnaðri tónlist í fyrstu fjölskylduóperunni sem skrifuð hefur verið á norðursamísku. 

Byström tekst á við verkefni sitt af miklu fjölhæfi. Með tónsmíð sem er krökk af sterkum andstæðum sýnir hún leikhúsfræðilega næmni, mikla handverkskunnáttu sem tónskáld og afar fágaða tilfinningu fyrir hljómsveitarútsetningum. Auk einsöngvara fá slagverk og kórar mikið athafnarými í köflum sem eru ýmist mínímalískir, óheflaðir eða lagrænir með þjóðlegu jojk-ívafi. 

Eatnama Váibmu er norrænt verk með brýnt erindi þar sem saga Samalands, og þar með hin samnorræna samíska saga, er í forgrunni. Útkoman er einstakur, listrænn lofsöngur til barnamenningar.