Drømmer – Noregur
Ágrip
Johanne, 17 ára, verður yfir sig ástfangin af kennaranum sínum. Þetta er fyrsta ástin hennar og til að halda sem lengst í tilfinninguna skrifar hún allt hjá sér. Þegar mamma hennar og amma lesa skrif hennar bregður þeim í fyrstu við hinar bersöglu lýsingar en láta svo heillast af bókmenntalegum gæðum textans. En hvað gerðist eiginlega á milli Johanne og kennarans? Og ætti að gefa það út á bók?
Rökstuðningur dómnefndar
Hvernig er hægt að höndla sannleikann um drauma sína og líf? Kvikmyndin Drømmer eftir Dag Johan Haugerud er lágstemmd stúdía um stórbrotin viðfangsefni sem kafar í frásagnarform kvikmyndalistarinnar. Á yfirborðinu er þetta einföld frásögn um ungu stúlkuna Johanne og ákafa ást hennar á kennaranum Johönnu. Með vel skrifuðu handriti þar sem sjónarhorn sögumannsins er nýtt með margslungnum hætti leikur Dag Johan Haugerud sér að kvikmyndamiðlinum, sem og mannlegum hugsunum og tilfinningum, þannig að myndin heldur áfram að vaxa í huga manns löngu eftir að áhorfi er lokið. Samstarf Haugeruds við kvikmyndatökukonuna Cecilie Semec hefur getið af sér gjöful sjónræn mótíf sem fara vel við sérstæða tónlist Önnu Nguyen Berg. Allt styður þetta við frábæra frammistöðu leikaranna, einkum Ellu Øverbye sem hér leikur sitt fyrsta aðalhlutverk. Að baki kostulegra sena og smellinna samtala vindur fram blæbrigðaríkri frásögn um gildi þess að kynnast eigin sjálfsmynd og verða maður sjálfur. Í Drømmer býr húmanismi og djúpur skilningur á hinsegin þrá og kynverund sem gerir myndina bæði kærkomna og þýðingarmikla í pólitísku samhengi líðandi stundar. Ásamt samstarfsfólki sínu hefur Dag Johan Haugerud skapað hjartnæmt verk sem er munúðarfullt, nánast áþreifanlegt og vekur áhorfandann til umhugsunar.
Dag Johan Haugerud
Dag Johan Haugerud er norskur bókasafnsfræðingur, skáldsagnahöfundur, handritshöfundur og kvikmyndaleikstjóri. Á meðal kvikmynda hans eru Som du ser meg, sem hlaut norsku Amönduverðlaunin 2013, Barn sem vann til níu Amönduverðlauna 2020 og hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs sama ár, Sex sem hlaut kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs 2024 og Drømmer sem hlaut Gullbjörninn 2025 á 75. alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín.
Yngve Sæther
Yngve Sæther hefur starfað við framleiðslu hjá Motlys síðan 2001. Hann hefur framleitt 20 kvikmyndir í fullri lengd og sjónvarpsþætti, þar á meðal Mannen som elsket Yngve (2008), Oslo, 31 augusti (2012), Turist (2014), Heimebane (2018) og Makta (2023). Myndir hans hafa verið valdar til sýninga á hátíðunum í Cannes og Berlín og hann hefur hlotið yfir 30 tilnefningar til Amönduverðlauna.
Hege Hauff Hvattum
Hege Hauff Hvattum er framleiðandi sem vinnur að sjónvarpsþáttum, stuttmyndum og kvikmyndum í fullri lengd. Hún lauk námi í framleiðslustjórnun frá Høgskolen í Lillehammer og námi í fjölmiðlafræði og listmiðlun frá NTNU, tækni- og náttúruvísindaháskóla Noregs.
Aðalleikstjóri: Dag Johan Haugerud
Aðalhöfundur: Dag Johan Haugerud
Aðalframleiðendur: Yngve Sæther, Hege Hauff Hvattum
Framleiðslufyrirtæki: Motlys
Dreifing: Arthaus
Titill á frummáli: Drømmer
Frumsýning í heimalandi: 4. október 2024
Lengd: 110 mínútur