Grasrótarhreyfingin Ålands Natur och Miljö – Álandseyjar
Grasrótarhreyfingin Ålands Natur och Miljö hlýtur tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025
Grasrótarhreyfingin Ålands Natur och Miljö hefur um þúsund meðlimi og má því segja að hún njóti víðtæks stuðnings á Álandseyjum, þar sem íbúar eru rúmlega 30 þúsund. Í starfsemi sinni leitast hreyfingin við að beita fyrirbyggjandi aðgerðum og veita innblástur. Starfið á að vera aðgengilegt meðlimum og þeim býðst vettvangur til að leggja sitt af mörkum í málefnum sem standa hjarta þeirra nærri.
Starfsemin hvílir á þremur stoðum: fræðslu fyrir almenning, samfélagsáhrifum og gleði yfir náttúrunni. Framkvæmd starfsins er meðal annars gegnum fræðslu, umræðuviðburði, átaksverkefni, vettvangsferðir og margvísleg verkefni. Hreyfingin leitast eftir samstarfi við hin ýmsu málefnasvið og nær þannig til samfélagsins alls. Útgangspunktur starfseminnar er áhugi og virkni meðlimanna og markmiðið er að sjálfbær lífsstíll verði þáttur í sjálfsmynd Álendinga.
Ýmis verkefni hafa sprottið upp úr starfi hreyfingarinnar, meðal annars stjórnmálaflokkurinn Hållbart initiativ sem hefur nú átt fulltrúa á álenska þinginu í tvö kjörtímabil, og einnig samstarfsnetið Bärkraft.ax sem starfar að framkvæmd hinna opinberu þróunar- og sjálfbærnimarkmiða Álandseyja. Ålands Natur och Miljö tekur virkan þátt í þessu samstarfsneti. Hreyfingin hefur átt frumkvæði að því að innleiða ýmis umhverfisverkefni á Álandseyjum, meðal annars umhverfisvottunarkerfið Græna lykilinn og finnska átaksverkefnið Håll skärgården ren.
Hreyfingin á sinn eigin skógreit við álenska skerjagarðinn og hefur framkvæmt fjölda annarra verkefna til að leiðbeina Álendingum í umgengni við náttúruna. Á undanförnum árum hefur hreyfingin staðið fyrir aðlögunarverkefni sem hefur nýbúa á eyjunum sem markhóp. Meira að segja í miðbæ Maríuhafnar, höfuðstaðar Álandseyja, hefur hreyfingin fært náttúruna nær almenningi með grasagarði sem hreyfingin hefur umsjón með í samstarfi við bæjaryfirvöld.
Ålands Natur och Miljö hefur veitt mikinn innblástur og virkjað almenning til þátttöku með jákvæðum hætti og aukið jafnframt meðvitund fólks um þær áskoranir sem samfélagið stendur frammi fyrir.