Håll Sverige Rent og Trygga Orten – Svíþjóð
Håll Sverige Rent og verkefnið Trygga Orten eru tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025.
Håll Sverige Rent og Trygga Orten eru tilnefnd fyrir starf sitt að því að virkja ungmenni til þátttöku í umhverfis- og samfélagsmálum. Starfsemin er skalanleg, öllum opin og byggð á staðreyndum.
Håll Sverige Rent, stofnuð árið 1983 af Naturvårdsverket og Returpack, eru vel þekkt og hvetjandi samtök sem standa að almannafræðslu og beita sér fyrir því að draga úr rusli í umhverfinu og efla bæði félagslegt og umhverfislegt öryggi. Samtökin hafa börn og ungmenni sem sérstakan markhóp og nýta rusl sem kennslufræðilegan inngang að fræðslu um þær afleiðingar sem neysla og hegðun mannfólksins hafa á líffræðilega fjölbreytni, vellíðan fólks og loftslagsbreytingar.
Á hverju ári síðan 2004 hefur Håll Sverige Rent virkjað 600 til 800 þúsund sænsk börn á skipulögðum ruslatínsludögum þar sem kennarar fá kennsluefni sem er aðlagað fyrir hvern aldurshóp og með tengingu við námsskrá.
Verkefnið Trygga Orten, sem varð til í samstarfi Håll Sverige Rent og Stadsmissionen, hefur það markmið að gera efnaminni svæði öruggari og hreinni með því að virkja ungmenni til þátttöku í ruslatínslu og öðrum aðgerðum sem efla bæði félagslega ábyrgðarkennd og umhverfisvernd.
Trygga Orten veitir ungmennum tækifæri til að fyrirbyggja félagslega einangrun og draga um leið úr ruslmyndun í umhverfinu undir merkjum einstaks þróunarverkefnis þar sem ungt fólk þroskast og valdeflist sem manneskjur og fær tækifæri til að komast inn á vinnumarkaðinn. Fyrirbyggjandi aðgerðir og umhverfisstarf undir merkjum verkefnisins hafa einnig orðið til þess að draga úr útgjöldum samfélagsins.
Síðan í ársbyrjun 2022 hefur verkefnið virkjað hundruð ungmenna á efnaminni svæðum til þátttöku og hefur efni á vegum þess verið skoðað oftar en 4 milljón sinnum á samfélagsmiðlum. Verkefnið er skínandi dæmi um það hvernig borgaralegt samfélag getur vakið áhuga ungs fólks á sjálfbærri framtíð og stuðlað að því að ala upp kynslóð barna og ungmenna sem hafa góða þekkingu á loftslagsmálum og kunna að grípa til aðgerða.