Handhafi barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024
Jakob Martin Strid får børne- og ungdomslitteraturprisen 2024
Rökstuðningur dómnefndar
Í "Den fantastiske bus" („Rútan rosalega“, hefur ekki verið þýdd á íslensku) fylgjumst við með stórfenglegu, 18.500 hestafla farartæki sem ekur beint inn í hjörtu lesenda í magnaðri frásögn um mikilvægi hugmyndaflugsins og vináttunnar. Jakob Martin Strid varði fimmtán árum í þetta tveggja og hálfs kílóa þunga og 40 sentimetra breiða meistaraverk. Sagan fjallar um Taku, lítinn gráan bangsastrák. Ásamt fleiri dýrum sem halda til niðri við höfnina í bænum Anhstarr City reynir hann að bjarga Timo vini sínum úr vanda.
Það er hreinlega töfrum líkast að skoða myndirnar af rútunni þegar félögunum hefur loksins tekist að koma henni á loft. Skyndilega virðist tíminn standa í stað í þessari annars ólgandi þeysireið þar sem frásögnin svífur ofar norðurljósum, Norðurpólnum, túndrunni og Hinsta landinu, þar sem félagarnir rekast á yfirgefin kjarnorkuver og ógeðfelldan kolkrabbaeinræðisherra sem þvingar börn til að láta af hendi afmælisgjafir sínar. Hin eiginlega aðalpersóna verksins er rútan. Við fylgjumst með henni skrölta og brölta af stað uns hún tekst að lokum á loft. Fyrst er það jörðin, því næst himinninn.
Bókin er krökk af vísunum í verk listamanna á borð við Claus Deleuran, Richard Scarry og Moebius, auk japanska teiknimyndameistarans Hayao Miyazaki. Teikningarnar eru ríkar af smáatriðum – gefa góða mynd af gangverki rútunnar – og einkennast af mikilfenglegri litapallettu. Strid kann þá list að koma stemningu til skila með teikningum sínum svo að lesandinn skynjar hlýjuna af vináttu félaganna í rútunni, en einnig kuldann sem stafar frá samfélaginu og rigninarsúldina fyrir utan.
Að hætti Strid er undirtónninn anarkískur, húmanískur og andkapítalískur. Það á að rífa hin heimasmíðuðu hús persónanna og byggja eitthvað nýtt, en samtakamátturinn færir félögunum sigur að lokum.
Strid hefur áður verið tilnefndur til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2018 fyrir verkið "Da Mumbo Jumbo blev kæmpestor".