Handhafi barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025

Sara Lundberg
Ljósmyndari
Ola Kjelbye
Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2025 hlýtur Sara Lundberg frá Svíþjóð fyrir myndabókina „Ingen utom jag“.

Rökstuðningur dómnefndar:

„Mamma, veistu hvað?“ 

„Nei, hvað?“ 

„Þú ert bryggjan og ég er báturinn.“ 

„Mhmm ...“ 

„Og báturinn er bundinn fastur við bryggjuna.“

 

Þannig hefst þessi magnaða þroskasaga fyrir lesendur myndabóka, þegar hnútur sem losnar verður kveikjan að frelsandi ævintýri. Með Ingen utom jag teiknar Sara Lundberg sig af miklu örlæti inn í hefð tímalausra frásagna þar sem týndir drengir og villt smábörn ferðast inn í Villta landið.

Sagan er römmuð inn af tæpum 200 orðum, en innan þeirra flæða litir og form frjálst: freyðandi fossar, dansandi frumskógarbörn og glóandi páfagaukar. Mittí öllu þessu villta leynast  líka augnablik kyrrðar, útrétt hönd barns og fræ sem skiptir um eiganda svo það megi líka vaxa. Þetta er  furðusaga sem lesendum er boðið að skapa sjálfir, ýmist einn eða fleiri saman, út frá margræðum fígúrum, mynstri og smáatriðum sem bjóða upp á túlkun og endurlestur. Hver einasti myndreitur er hreint listaverk!

Sara Lundberg (f. 1971) hefur meðal annars stundað nám við Konstfack og Konunglega listaháskólann í Stokkhólmi og hefur markað sér sess sem margverðlaunaður myndhöfundur og rithöfundur. Meðal annars hefur hún hlotið August-verðlaunin tvisvar, síðast árið 2017 fyrir bókina Fågeln i mig flyger vart den vill sem hlaut einnig Snöbollen-verðlaunin fyrir bestu sænsku myndabók ársins 2017.