Handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2021

Den grönländska författaren Niviaq Korneliussen har tilldelats Nordiska rådets litteraturpris 2021 för romanen ”Naasuliardarpi” (Blomsterdalen)

Den grönländska författaren Niviaq Korneliussen har tilldelats Nordiska rådets litteraturpris 2021

Photographer
Norden.org/Magnus Fröderberg
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2021 hlýtur grænlenski rithöfundurinn Niviaq Korneliussen fyrir „Naasuliardarpi“.

Rökstuðningur dómnefndar

Skáldsagan Naasuliardarpi („Blómadalurinn“) eftir Niviaq Korneliussen hefur hrifið dómnefndina með lifandi ákefð sinni. Bókin fjallar um ást, vináttu og um það að tilheyra samfélagi sem glímir við arfleifð nýlendustefnu. Hér er á ferð afar hjartnæmt verk sem veitir innsýn í tilveru Grænlendinga í dag og þau áföll sem enn setja mark sitt á daglegt líf þeirra. Frásögnin er falleg, en einnig sársaukafull og óvægin. Dauði fyrir eigin hendi fylgir aðalpersónunni ungu frá upphafi til söguloka, en þrátt fyrir allt myrkrið liggja þræðir ástar gegnum textann og geisla frá sér birtu og blíðu. Stíllinn er blátt áfram og þrunginn afar nákvæmri skynjun og þrátt fyrir að sögukonan komi að lokum á örvæntingarfulla endastöð og kalli lesandann til vitnis, þá lýsir skáldsagan þrá sem er öllu öðru yfirsterkari. Ekki aðeins eftir dauðanum, heldur einnig eftir lífinu. Þetta er máttug list sem mun standast tímans tönn.