Handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2024
Niels Fredrik Dahl får Nordisk råds litteraturpris 2024
Rökstuðningur dómnefndar
Sonur reynir að skilja föður sinn með hjálp bréfa, teikninga og ljósmynda sem hann skildi eftir sig: „Ég gæti að föður mínum. Hann hefur verið dáinn í fjórtán ár, og samt gæti ég að honum.“ "Fars rygg" („Bakið á pabba“, hefur ekki komið út á íslensku) er skáldsaga sem sýnir hvernig einmanaleiki erfist milli kynslóða og hversu erfitt eða því sem næst ómögulegt er að átta sig á því sem hefur haft hvað djúpstæðust áhrif á ævi manns og sögu. Föðurafi aðalpersónunnar – dómarinn, harðstjórinn og þungamiðja fjölskyldunnar – gegnir mikilvægu hlutverki í sögunni. Frásögnin teygir sig yfir nokkra áratugi og heimsálfur og hefur órjúfanleg tengsl við sögu stríða og heimsvaldastefnu, en varpar um leið ljósi á það hvernig minni sem einkennist af gloppum og lausum endum er í raun það eina sem sem við höfum við að styðjast þegar við reynum að átta okkur á fortíðinni.
Handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs þetta árið hefur skrifað magnaða en jafnframt lágstemmda skáldsögu um það að fálma eftir hinu dulda og ókunna í eigin uppruna og þar með eftir áhrifum þess á mótun sjálfsmyndarinnar. Hér er á ferð bæði sársaukafull og skekjandi tilraun til þess að kanna og skilja þann vef sem verður til úr upplifun hverrar manneskju og hinum sameiginlegu, nánast yfirþyrmandi kringumstæðum heimsins sem við hrærumst öll í. Með "Fars rygg" hefur verðlaunahafinn í ár, Niels Fredrik Dahl, skapað djúpa og sérstæða skáldsögu um glataðan tíma og rök eftirsjárinnar.