Handhafi tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2025
Rökstuðningur dómnefndar
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari hefur fangað ímyndunarafl bæði almennings og gagnrýnenda með djúpri tónlistargáfu sinni. Ferill Víkings hefur legið stöðugt upp á við að undanförnu og eykst vegsemd hans með hverju árinu sem líður. Í dag er hann heimsþekktur sem einn virtasti starfandi píanóleikari okkar tíma og frægur fyrir nýstárlegar túlkanir, heillandi sviðsframkomu og einstaka getu til að breiða sígilda tónlist út til víðari markhóps.
Á meðal viðurkenninga sem Víkingur hefur hlotið eru Hin íslenska fálkaorða, Útflutningsverðlaun forseta Íslands, Íslensku tónlistarverðlaunin og Rolf Schock-verðlaunin, auk verðlauna frá BBC Music Magazine og Opus Klassik, svo eitthvað sé nefnt. Gagnrýnendur virtra dagblaða á borð við The New York Times og Le Monde hafa lokið lofsorði á tónlistarflutning Víkings og í tónlistartímaritinu Gramophone var hann sagður „gæddur stórbrotinni snilligáfu“.
Upptökur hans fyrir Deutsche Grammophon hafa verið spilaðar yfir milljón sinnum á streymisveitum og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Á meðal helstu hljómplatna Víkings má nefna Philip Glass: Piano Works (2017), Johann Sebastian Bach (2018) og J. S. Bach: Goldberg Variations (2023), sem hann hlaut Grammy-verðlaun fyrir. Hinn sterki fókus í efnisskrá Víkings vitnar um einstætt sjónarhorn er skapar samhangandi þráð gegnum tímabil sem virðast ólík á yfirborðinu, og sýnir glöggt hve víðfeðm hin listræna sýn hans er.
Víkingur hefur komið fram í mörgum af þekktustu tónlistarhúsum heims og leikið með helstu hljómsveitum Evrópu og Bandaríkjanna, meðal annars Fílharmóníusveit Los Angeles, Fílharmóníusveit New York-borgar og Fílharmóníusveit Berlínar. Sviðsframkoma hans hefur verið sögð kraftmikil og ljóðræn, að hann heilli tónleikagesti með orku sinni og persónutöfrum. Tímabilið 2023–2024 helgaði hann því að ferðast um heiminn og leika Goldberg-tilbrigðin, og uppskar fyrir það mikið lof bæði gagnrýnenda og tónleikagesta.
Víkingur er ástríðufullur talsmaður sígildrar tónlistar og leitar stöðugt nýrra leiða til að kynna hana fyrir öllum sem heyra vilja og nýtir þannig nýjar leiðir til að ná til breiðari markhóps og undirstrika mikilvægi þess að sígild tónlist lifi góðu lífi í nútímanum.