Havsmörker

Ljósmyndari
Ezgi Johansson
Tvíeykið Havsmörker (Anton Johansson og Axel Hjo) hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2026 fyrir verkið Ilväder.

Ilväder („Illviðri“) er verk sem einkennist af mikilli listrænni og handverkslegri nákvæmni og þróar áfram samspilið á milli efnis sem tekið er upp utan hljóðvera, rafrænnar endurvinnslu og órafmagnaðra hljóðheima. Havsmörker skapar sérstæða tjáningu þar sem lágstemmd hreyfing, urmull hljómrænna smáatriða og formbundin rökvísi mynda samhangandi og tvíræða heild. 

Verkið ber vott um að tvíeykið hafi dýpkað listrænt samstarf sitt, sem einkennist af langtímahugsun og rökréttri fagurfræðilegri stefnu. Havsmörker, Anton Johansson og Axel Hjo, eiga rætur að rekja til Álandseyja, starfa í Svíþjóð og Noregi og eiga í lifandi norrænu samstarfi þar sem staðbundin rótfesta fléttast saman við tilraunakennda samtímatónlist sem á mikið erindi á alþjóðlegum vettvangi.