The Helsinki Effect – Finnland
Ágrip
The Helsinki Effect er heimildamynd sem byggist alfarið á efni úr skjalasöfnum og fjallar um tilgangslausa ráðstefnu sem breytti heiminum. Með hressandi huglægu sjónarhorni og slatta af kímni kanna höfundar myndarinnar þá list sem fólst í hæggengri diplómatíu á tímum kalda stríðsins.
Rökstuðningur dómnefndar
The Helsinki Effect sýnir það og sannar að kvikmynd getur orðið stærri en allir hlutar hennar samanlagðir. Þessi heimildamynd, sem Arthur Franck skrifaði handrit að og leikstýrði og sem byggist að öllu leyti á efni úr skjalasöfnum, sýnir glöggt þá lágstemmdu list sem felst í vali og frásagnarhætti. Sögulegir atburðir verða ljóslifandi fyrir tilstilli glöggra tenginga, nýrrar og upplýsandi túlkunar og kímni. Styrkur myndarinnar liggur einkum í því að hún talar beint inn í samtímann, sem er óvænt í heimildamynd sem hverfist um hálfrar aldar gamla stjórnmálasögu. Á þessum umbrotatímum er The Helsinki Effect áhrifamikil áminning um að allt hefur sinn tíma. Myndin er framleidd af Arthur Franck, Söndru Enkvist og Oskar Forstén.
Arthur Franck
Arthur Franck er heimildamyndagerðarmaður frá Helsinki. Hann lauk B.A.-prófi árið 2009 og hefur unnið að gerð heimildamynda í meira en 15 ár. Nýjasta mynd Francks, The Helsinki Effect, var frumsýnd í aðalkeppninni á CPH:DOX 2025 og er nú sýnd í kvikmyndahúsum í Finnlandi og Þýskalandi, auk ýmissa alþjóðlegra hátíða. Hann rekur framleiðslufyrirtækið Polygraf ásamt Söndru Enkvist. Hann á þrjú börn og spilar körfubolta á mánudögum.
Sandra Enkvist
Sandra Enkvist starfaði við kvikmyndaframleiðslu fyrir ýmis fyrirtæki frá árinu 2015 en hefur verið fastur framleiðandi og meðeigandi hjá Polygraf frá árinu 2022. Undanfarið hefur hún stundað meistaranám í kvikmyndaframleiðslu við kvikmyndadeild Aalto-háskólans í Finnlandi. Útskriftarmynd hennar, stuttmyndin The Lightning Rod, var valin til sýningar í flokknum La Cinef á kvikmyndahátiðinni í Cannes árið 2025. Enkvist leggur áherslu á skapandi heimildarmyndir í störfum sínum og nýjasta mynd hennar, The Helsinki Effect eftir Arthur Franck, var frumsýnd í aðalkeppninni á CPH:DOX árið 2025. Hún hefur einnig numið við Eurodoc, Circle Women Doc Accelerator og IDFAcademy.
Oskar Forstén
Oskar Forstén stundaði nám í kvikmyndagerð við ýmsa skóla í Finnlandi, Svíþjóð og Bretlandi milli 1998 og 2009. Hann stofnaði framleiðslufyrirtækið Polygraf árið 2007 ásamt Arthur Franck, en grundvöllur fyrirtækisins var ást þeirra beggja á skapandi heimildamyndum. Síðan þá hefur Oskar Forstén framleitt um þrjátíu myndir, allt frá stuttmyndum til heimildaþáttaraða og heimildamynda í fullri lengd, sem hafa verið sýndar á hátíðum á borð við CPH:DOX, Visions du Réel, HotDocs, True/False, DokLeipzig, Chicago Int. Film Festival og IDFA. Eftir meira en fimmtán ára starf sem kvikmyndaframleiðandi starfar Oskar Forstén nú sem kvikmyndaráðgjafi hjá þróunarmiðstöðinni AVEK, sem eflir hljóð- og myndmiðlamenningu með höfundarréttargreiðslum og stuðningi við fagleg verkefni og starfsemi á sviði hljóð- og myndmiðlaefnis í Finnlandi.
Aðalleikstjóri: Arthur Franck
Aðalhöfundur: Arthur Franck
Aðalframleiðendur: Sandra Enkvist, Arthur Franck, Oskar Forstén
Framleiðslufyrirtæki: Polygraf
Dreifing: Polygraf, Rise and Shine
Titill á frummáli: The Helsinki Effect
Frumsýning í heimalandi: 5. apríl 2025
Lengd: 88 mínútur