Ingibjörg Turchi
Bassaleikarinn og tónskáldið Ingibjörg Turchi hefur verið mikilvirk á ýmsum sviðum íslensku tónlistarsenunnar. Menntun hennar spannar allt frá djassi og tónsmíðum sígildrar samtímatónlistar til háskólaprófa í forngrísku og latínu. Ingibjörg er eftirsóttur session-spilari og hefur spilað með mörgum af ástsælustu listamönnum Íslands, bæði á tónleikum og plötum.
Stropha er önnur plata hennar og inniheldur hljóðmynd í mörgum þéttum lögum. Stemningin á plötunni er fjölbreyttari og hömlulausari en á hinni björtu Meliae (2020). Tónskáldið ögrar eigin listsköpun og byggir áfram á sínum flæðandi, melódíska og nánast leiðslukennda bassaleik – sem minnir stundum á verk hins stórsnjalla bassaleikara og tónskálds Skúla Sverrissonar.
Ingibjörg blandar saman nútímadjassi, spuna og melódísku flúri í samstilltri heild. Hún gerir tilraunir, en þó aldrei á kostnað uppbyggingar eða heildarsýnar. Hún segir einnig skilið við hið þétta flæði sem einkenndi fyrri plötuna, sem var nokkurn veginn línuleg á meðan Stropha hoppar og skoppar, tekst að koma hlustandanum á óvart og færa hann í óvæntar áttir. Þetta er skínandi verk eftir eitt mesta hæfileikabúnt Íslands.