Israel Palestina på svensk tv 1958–1989 – Svíþjóð
Ágrip
Israel Palestina på svensk tv 1958–1989 er óviðjafnanleg kvikmyndaleg lýsing á aðdraganda átakanna milli Ísraels og Palestínu, sögð með einstökum upptökum sem vekja sterka innlifun áhorfenda og sem lengi vel lágu ósnertar í geymslum sænska ríkissjónvarpsins. Eftir leikstjóra heimildamyndanna The Black Power Mixtape 1967–1975 og Om våld.
Rökstuðningur dómnefndar
Israel Palestina på svensk tv 1958–1989 er áhrifamikið og metnaðarfullt heimildaverkefni sem beinir sjónum að framsetningu sænska ríkissjónvarpsins á einum flóknustu og lengstu stríðsátökum okkar tíma. Göran Hugo Olsson hefur hæglátan en meitlaðan stíl sem veitir hér kvikmyndalega sýn á tímabil í fjölmiðlasögunni sem er töluvert frábrugðið nútímanum – þegar ríkisstöðvarnar höfðu allt dagskrárvald þegar kom að útsendingu myndskeiða af heiminum, og báru þar með sérstaka ábyrgð á framsetningu heimsins gagnvart almenningi.
Þannig segir myndin okkur ekki aðeins sögu frá Mið-Austurlöndum, heldur er hún einnig sagnfræðileg heimild um viðhorf sænsks sjónvarpsfólks gegnum tíðina til hlutleysis og fagmennsku. Varfærnisleg nálgun myndarinnar undirstrikar ýmsar breytingar sem orðið hafa á fagurfræði sjónvarpsútsendinga, siðfræði fjölmiðla og pólitískum raunveruleika í tímans rás – og það hvernig fjölmiðlar reyna að ná áttum í þessu síbreytilega umhverfi.
Með mikilli sögulegri breidd, rökréttu samhengi klippingar og af djúpri alvöru er dregin upp frásögn af því hvernig sænskir fjölmiðlar hafa fjallað um átök sem hafa lengi verið áberandi á sjónvarpsskjám almennings, en þar sem forsendur okkar til túlkunar hafa verið síbreytilegar. Israel Palestina på svensk tv 1958-1989 er mynd sem tekur tiltekið sjónarhorn til skoðunar frá öðru sjónarhorni.
Göran Hugo Olsson
Göran Hugo Olsson er kvikmyndaleikstjóri og framleiðandi og einn af stofnendum framleiðslufyrirtækisins Story. Hann nam við Konstakademien í Stokkhólmi og er einn helsti kvikmyndahöfundur Svía á alþjóðavettvangi. Fyrsta mynd hans, Fuck You, Fuck You Very Much (1998), telst til sígildra verka í sögu sænskra kvikmynda. The Black Power Mixtape 1967–1975, heimildamynd í fullri lengd frá 2011, sló í gegn á hátíðum, í kvikmyndahúsum og sjónvarpi víða um heim. Olsson fylgdi henni eftir með myndinni Om våld (2014), sem Lauryn Hill talar inn á. Myndin var frumsýnd á Sundance og á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín og hlaut lof gagnrýnenda. Göran Hugo Olsson hefur einnig leikstýrt myndunum Fonko (2016) og Den sommaren (2017) sem báðar voru sýndar á hátíðum og í sjónvarpi víða um heim. Nýjasta mynd hans í fullri lengd, Israel Palestina på svensk tv 1958–1989, var frumsýnd í Feneyjum og hefur verið sýnd á stórum hátíðum víða um heim.
Tobias Janson
Tobias Janson er framleiðandi og framkvæmdastjóri Story, sænsks framleiðslufyrirtækis sem er leiðandi á sviði heimildamynda og hefur bækistöðvar í Stokkhólmi og Gautaborg. Á ferilskrá hans eru ýmsar heimildamyndir sem hlotið hafa verðlaun og lof gagnýnenda og verið sýndar víða um lönd, svo sem Hypermoon (Grand Prix, Festival des Films Européens), A House Made of Splinters (tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta heimildarmynd), Den sommaren (Telluride-hátíðin og alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Berlín), Om våld (Sundance World Cinema Documentary Competition, Cinema Fairbindet-verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Berlín, Guldbagge-verðlaun sem besta heimildarmynd), Belleville Baby (frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín, Guldbagge-verðlaun sem besta heimildrmynd) og The Black Power Mixtape 1967–1975 (hlaut World Cinema Editing Award á Sundance, frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín 2011). Tobias Janson var sá sænski framleiðandi sem tilnefndur var til verðlaunanna Nordic Documentary Producer Award árið 2024.
Aðalleikstjóri: Göran Hugo Olsson
Aðalhöfundur: Göran Hugo Olsson
Aðalframleiðandi: Tobias Janson
Framleiðslufyrirtæki: Story AB
Dreifing: Folkets Bio
Titill á frummáli: Israel Palestina på svensk tv 1958–1989
Frumsýning í heimalandi: 4. október 2024
Lengd: 210 mínútur