Jeppe Sandholt

Ljósmyndari
Louise Eriksen
Jeppe Sandholt: Ørn, Fahrenheit, teiknimyndasaga, 2024. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025.

Í teiknimyndasögunni Ørn („Örn“) kynnumst við Thor sem býr á bóndabæ ásamt mömmu sinni og pabba. Thor hefur vanist því að pabbi hans taki allar ákvarðanir á heimilinu og í skólanum leyfir hann öðrum að taka ákvarðanir fyrir sig. Þess vegna verður hann auðvelt skotmark fyrir eineltisseggi. Dag nokkurn fara Thor og pabbi hans út í skóg. Það hafa þeir oft gert áður. En í þetta sinn skjóta þeir fullorðinn örn. Thor heyrir veikt kvak og finnur nýklakinn arnarunga sem nú er orðinn munaðarlaus. Arnarunginn verður nokkurs konar driffjöður fyrir stórar breytingar í lífi Thors. Nú er það hann sem ber ábyrgð á annarri veru, hann sem tekur ákvarðanirnar. Það reynist þó mun erfiðara en Thor hafði haldið að hafa hemil á villtu dýri og koma fram við það sem nokkurs konar lítinn bróður, nánast jafningja. 

Thor berst við að sinna þessu verkefni og leitar að sinni eigin leið í lífinu, fjarri þröngsýnum skoðunum föður síns á því hvernig alvöru karlmenn eigi að vera. Thor vill eitthvað annað en hina fyrir fram ákveðnu leið. Hann vill berjast fyrir því að eiga örn að bróður og vini. Mamma Thors hefur löngu tekið eftir því að rándýr dvelur í húsinu en pabbinn skilur það ekki fyrr en allt er komið í óefni og ómögulegt að dylja aðstæðurnar lengur fyrir samfélaginu í kringum litlu fjölskylduna, sem styður hana þó á endanum og finnur henni stað lögum og reglum samkvæmt. Frelsið er oft dýru verði keypt.  

Ørn er 842 síður að lengd og því væntanlega lengsta teiknimyndasaga sem komið hefur út á dönsku. Þó er tiltölulega lítið af texta á hverri síðu, sem gerir bókina auðlesna án þess að það bitni á dramatískri og býsna flókinni frásögninni. Þetta er tvímælalaust áhrifamikið verk sem ávarpar lesandann með beinum hætti í sínu einfalda, stundum hreinlega absúrd formi. Með fáum en vel völdum litum er skapaður heimur þar sem ekkert er svarthvítt lengur, heldur grundvallað í glæsilegu og voldugu rými annarra veruleika þar sem hinn gamli heimur er löngu orðinn nýr. 

Hér hefur Jeppe Sandholt skrifað og teiknað óð til ímyndunaraflsins í öllum þess flóknu blæbrigðum. Frásögnin er fyndin, hjartnæm og gríðarlega frumleg. Sá sem á örn að trúnaðarvini er aldrei einmana. Þetta er nútímaleg dæmisaga sem dregur lesandann inn í brotakenndan, pixlaðan og nánast (niður)brotinn heim, þar sem dýrið hjálpar okkur að skilja okkur sjálf og hvert annað. Dýrið fer – eða flýgur – sínar eigin leiðir, rétt eins og Jeppe Sandholt sjálfur. Hér heldur hann sig fast við sinn nákvæma og einbeitta frásagnarhátt, með þá hugsjón að leiðarljósi að gleyma aldrei því villta og ótamda mitt í öllu þessu straumlínulagaða.    

Jeppe Sandholt (f. 1982) er teiknimyndahöfundur og myndhöfundur. Ørn er fyrsta bók hans, bæði sem texta- og myndhöfundar. Hann lauk BA-prófi frá Animation Workshop í Viborg árið 2008.