Linda Bondestam

Ljósmyndari
MC/Linus Lindholm
Linda Bondestam: Chop Chop – en tapper jordbos berättelse, myndabók, Förlaget, 2024. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025

„Þetta byrjaði allt með rafrásaspjaldi.“ Þannig hefst myndabókin Chop Chop – en tapper jordbos berättelse (Chop Chop – frásögn hugprúðs jarðarbúa) eftir Lindu Bondestam, þar sem segir frá litlu, indælu vélmenni sem er sérhannað til að sýna hjálpsemi. Chop Chop vinnur dag og nótt með bros á vör, óafvitandi um afleiðingarnar fyrir hina mennsku samstarfsfélaga hans sem geta ekki verið eins afkastamiklir. Alveg þangað til sá dagur rennur upp að Chop Chop er sjálfur gerður úreltur af enn skilvirkara vélmenni og er líka rekinn. 

Viðburðaríkt ferðalag Chop Chop um framtíðarheim, þar sem samkenndin hefur vikið fyrir tölvustýringu og gervigreind, endurspeglar þá ógnvænlegu framtíðarsýn sem við stöndum andspænis í dag. Um leið er þessari drungalegu sýn stillt snilldarlega upp á móti hinni heillandi og góðhjörtuðu aðalpersónu og tilfinningu hennar fyrir því hvað skipti raunverulegu máli. Chop Chop gefst aldrei upp, ekki einu sinni þegar hin ofurhraða sjálfvirknivæðing nær hámarki í heljarinnar kjarnorkustríði sem eyðir öllu, heldur byrjar strax að byggja nýjan og betri heim. 

Bondestam hefur grínast með að myndabækur hennar, Mitt bottenliv – av en ensam axolotl (2020) og Chop Chop, séu sjálfsævisögulegar en í báðum bókunum er endalokum mannkyns lýst í gamansömum tón sem sér til þess að framtíðarvonir lesendanna verði ekki að engu. Í Chop Chop kannar Bondestam nýjar lendur innan myndabókaformsins með aðstoð landslagsvíðmynda, sem flæða út yfir ramma sína og fylla óvenju margar blaðsíður fyrir myndabók. Litapallettan er viðkvæm og jafnframt full af sterkum andstæðum og á í áhrifaríku samspili við beittar og knappar setningar og hnyttnar samræður. Hnökralaus samruni forma, lita og texta skilar sér þannig í heildstæðri myndabókarfrásögn. 

Með Chop Chop heldur Bondestam áfram djarflegri rannsókn sinni á möguleikum myndabókarformsins, bæði hvað varðar efni og innihald. Líkt og í Mitt bottenliv sýnir hún einstaka hæfileika til að draga áleitin samfélagsmál inn í samhengi (barna)bókmennta. Loftslagshamfarir, stríð og heimsendir eru síður en svo framandi viðfangsefni í listrænu höfundarverki hennar, þar sem hvatt er til samtals um lífskjör á hnettinum okkar – af uppreisnaranda en jafnframt hjartahlýju. Jafnvel þegar viðfangsefnið er vélvæðing og gervigreind á móti kapítalískum vinnumarkaði tekst Bondestam að töfra fram sýn sem einkennist af von um nýja möguleika. 

Linda Bondestam (f. 1977) er margverðlaunaður myndabókahöfundur og myndhöfundur. Hún hefur gefið út um 40 bækur. Árið 2017 hlaut bókin Djur som ingen sett utom vi (2016) eftir Ulf Stark og Lindu Bondestam barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Chop Chop er fjórða myndabókin sem Bondestam semur ein.