Liv Wentzel

Ljósmyndari
Liv Wentzel
Liv Wentzel: Neptunihusets hemlighet, Litorale, kaflabók, 2024. Tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2025.

Skammt frá höfninni við Neptúnsgötu í Maríuhöfn er hið svonefnda Neptúnshús, sem er sögusvið þessarar kaflabókar Liv Wentzel fyrir börn. Bókin fjallar um Judith sem flytur í gamalt einbýlishús inni í bænum ásamt fjölskyldu sinni. Húsið er í niðurníðslu og þarfnast viðhalds, en vandinn er að það virðist ekki kæra sig um breytingar. Það streitist á móti framkvæmdum og naglarnir bogna í fjölunum meðan málningin sullast niður. Þegar fjölskyldan er flutt inn sér Judith stelpu í gamaldags fötum í eldhúsinu. Stelpan sýnir sig í dálitla stund og hverfur svo eins og vofa – en það eru engir draugar til, er það nokkuð? Judith rekst líka á leynigöng og falið leikherbergi í húsinu. Hún finnur ýmsa leyndardómsfulla muni, eins og nisti með litlum lykli í, og yngri systir hennar finnur stóran kuðung. Í kuðungnum heyrist niður sem hljómar eins og „mon ami“. Mamma þeirra grefur litla beinagrind upp úr garðinum, sem virðist vera af ketti, og í ganginum hangir málverk af seglskipinu Moshulu sem lifnar við á nóttunni. Dag nokkurn er gamall maður staddur á leikvellinum. Hann talar um þá tíma þegar Klinga skipstjóri bjó í húsinu og segir að Neptúnshúsið geymi mörg leyndarmál. Hvað hefur eiginlega gerst í þessu húsi? Er einhver úr fortíðinni að reyna að segja Judith eitthvað?   

Neptunihusets hemlighet („Leyndarmál Neptúnshússins“) er ráðgátusaga en fjallar einnig um hið spennandi tímabil þegar Maríuhöfn á Álandseyjum var heimahöfn síðasta stóra seglskipaflota heimsins. Moshulu var raunverulegt skip sem sigldi um heimshöfin snemma á 20. öld og Klinga skipstjóri á sér líka fyrirmynd í veruleikanum. Sagan gerist í Maríuhöfn og margir þekktir staðir og kennileiti bæjarins koma fyrir í frásögninni. Bókin fjallar líka um það að vaxa úr grasi og um það þegar góðir vinir fara að vaxa í sundur. Þetta er marglaga frásögn sem tekst á við fjölda viðfangsefna. Lesandinn er dreginn áfram af löngun til að skilja samhengið milli allra þráða sögunnar og hinna leyndardómsfullu muna sem leynast í húsinu. Sögulokin veita svör við flestum spurningum en þó eru einnig óútskýrðir atburðir sem hægt er að velta fyrir sér áfram.  

Liv Wentzel er rithöfundur, blaðamaður og bókasafnsfræðingur. Hún var áður búsett í Maríuhöfn á Álandseyjum en býr nú í Svíþjóð. Árin á Álandseyjum lögðu grunninn að rithöfundarferli hennar og hún hefur áður skrifað þrjár skáldsögur fyrir fullorðna þar sem saga eyjanna hefur verið henni innblástur. Neptunihusets hemlighet er fyrsta barnabók hennar.