Ljósbrot – Ísland

Ljósmyndari
Sophia Olsson
Íslenska kvikmyndin Ljósbrot er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025. Tilnefnd eru leikstjórinn, handritshöfundurinn og framleiðandinn Rúnar Rúnarsson og framleiðandinn Heather Millard.

Ágrip

Ljósbrot gerist á fallegum vordegi þegar líf Unu snýst á hliðina á svipstundu. Upphefst þá rússíbanaferð tilfinninga þar sem mörkin milli hláturs og gráturs, fegurðar og sorgar, verða stundum óskýr. 

Rökstuðningur dómnefndar

Una, aðalpersóna myndarinnar, glímir við innri ólgu sem birtist í speglum og spegilmyndum og er sprottin af mikilli leynd sem einkenndi ástarsamband hennar. Elín Hall fer með hlutverk Unu og með hrárri berskjöldun leiðir hún áhorfendur í gegnum tilfinningaþrungið ferðalag þar sem sorgin kraumar undir niðri. Ljósbrot fjallar um hverfulleika tilverunnar og það hvernig allt getur breyst á augabragði. Ljóðrænt raunsæi Rúnars Rúnarssonar setur hið ósagða framar því sem sagt er beinum orðum um leið og óvæntri kímni er fléttað inn í frásögnina. Með því að leyfa því harmræna og því fyndna að standa samhliða kemst Rúnar hjá því að lýsa sorginni sem einvíðu fyrirbæri og sér jafnframt til þess að kvikmyndin endurspegli hið oft og tíðum mótsagnakennda róf mannlegra tilfinninga í heild.

Rúnar Rúnarsson

Ferill Rúnars Rúnarssonar sem leikstjóra mynda í fullri lengd hófst þegar hann frumsýndi Eldfjall á Directors‘ Fortnight í Cannes. Hún hlaut alls 17 alþjóðlegar viðurkenningar á hinum ýmsu hátíðum. Önnur kvikmynd Rúnars, Þrestir (2015), sló einnig í gegn á hátíðum og hlaut 20 alþjóðleg verðlaun, þar á meðal La Concha Ora sem eru aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í San Sebastián. Fjórum árum síðar var þriðja kvikmynd hans, Bergmál, frumsýnd á hátíðinni í Locarno eftir að hafa verið valin til sýningar á Cannes Atelier og vann hún til sex alþjóðlegra verðlauna. 

Heather Millard

Heather Millard er meðstofnandi framleiðslufyrirtækisins Compass Films og meðstofnandi fyrsta teiknimyndaversins á Íslandi, Animation Studio Iceland. Millard hefur framleitt fjölda heimildarmynda, kvikmynda, stuttmynda og teiknimynda sem hlotið hafa alþjóðleg verðlaun. Á meðal kvikmynda hennar í fullri lengd eru Ljósbrot eftir hinn Óskarstilnefnda leikstjóra Rúnar Rúnarsson, sem var opnunarmynd í flokknum Un Certain Regard á Cannes árið 2024, og Kuldi sem leikstýrt var af Erlingi Thoroddsen og var fimmta vinsælasta myndin í íslenskum kvikmyndahúsum árið 2023. Að auki framleiddi hún nýlega stuttmyndina O í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar sem frumsýnd var á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í september 2024. Yfirstandandi verkefni hennar eru Ormhildarsaga eftir Þóreyju Mjallhvíti, sem er teikniþáttaröð fyrir börn (samframleiðsla RÚV og NDR í Þýskalandi, Svenska Yle í Finnlandi, NRK í Noregi, SVT í Svíþjóð og DRTV í Danmörku) og teiknaða stuttmyndin Hold it Together sem leikstýrt er af Fan Sissoko. 

Aðalleikstjóri: Rúnar Rúnarsson 
Aðalhöfundur: Rúnar Rúnarsson 
Aðalframleiðendur: Heather Millard, Rúnar Rúnarsson 
Framleiðslufyrirtæki: Compass Films 
Dreifing: Sam Film 
Alþjóðleg dreifing: The Party Film Sales 
Titill á frummáli: Ljósbrot 
Frumsýning í heimalandi: 26. ágúst 2024 
Lengd: 82 mínútur