Miljøagentene - Norgegur
Miljøagentene eru eigin umhverfissamtök barna. Samtökin stuðla að því að rödd barna og ungmenna heyrist í loftslags- og umhverfismálum. Börn fá tækifæri til að taka virkan þátt í verkefnum, kynnast öðrum börnum með áhuga á loftslagsmálum og kanna tengsl mannsins við náttúruna. Samtökin gegna mikilvægu hlutverki sem málsvari barna og eru lykilaðili í því að takast á við loftslags- og náttúrukreppuna með því að virkja börn frá unga aldri.
Samtökin eru fyrir börn á aldrinum 4–15 ára. Með þekkingu, reynslu og þátttöku fá börn þau verkfæri sem þau þurfa til að skilja umhverfisáskoranir og standa vörð um málefni sem þeim eru kær. Miljøagentene virkja, efla getu og skapa samstöðu meðal umhverfismeðvitaðra barna og ungmenna.
Samtökin veita börnum tilfinningu fyrir eigin getu, von og trú á að það skipti máli að taka þátt. Í gegnum lýðræðislega þátttöku og loftslagsnefnd barna fá börn og ungmenni raunverulega rödd í samfélaginu. Tækifærið til að gera eitthvað saman á sameiginlegum vettvangi og aukin geta til að viðhalda von er afar mikilvægt á þessum tímum. Miljøagentene leggja sitt af mörkum til að móta kynslóð sem bæði hefur vilja og getu til að vernda náttúruna og loftslagið.
Það sem einkum aðgreinir Miljøagentene frá öðrum verkefnum á Norðurlöndum er að um er að ræða lýðræðisleg samtök þar sem börnin ráða för. Samtökin eru þau fyrstu sinnar tegundar sem hafa gert börnum í Noregi kleift að hafa pólitísk áhrif í gegnum lýðræðisleg ferli. Á landsfundum, þar sem fulltrúarnir eru börn, er ákveðið hvaða málefni samtökin skulu leggja áherslu á, og þau hafa jafnframt sérstaka, lýðræðislega kjörna loftslagsnefnd sem hefur pólitískt áhrifavald.
Samtökin telja yfir 10.000 félaga og starfrækja fjölda deilda víða um Noreg. Þau hafa vaxið hratt á undanförnum árum og fyrirmyndin er auðveldlega yfirfæranleg á önnur norræn lönd. Nú þegar mörg norsk samtök á sviði loftslags- og umhverfismála hafa misst ríkisstuðning er afar mikilvægt að sýna norrænan stuðning við samtök af þessu tagi.