Min Evige Sommer – Danmörk

Ljósmyndari
Jan Bastian Munoz Martinsen, Adomeit Film
Danska kvikmyndin Min Evige Sommer er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Tilnefnd eru leikstjórinn Sylvia Le Fanu, handritshöfundurinn Mads Lind Knudsen og framleiðandinn Jeppe Wowk.

Ágrip

Hin 15 ára Fanny og foreldrar hennar eru komin í sumarbústaðinn sinn og ætla að verja þar sumrinu eins og þau eru vön. Undir yfirborði hversdagslegra athafna og fjölskylduhefða liggur þó óorðuð sorg – þau vita að þetta verður síðasta sumar móðurinnar. Meðan Fanny og foreldrar hennar reyna að njóta þess tíma sem þau eiga eftir saman flakka þau varfærnislega á milli þess að njóta líðandi stundar og horfast í augu við hina óumflýjanlegu framtíð.  

Juryns motivering

Min Evige Sommer er falleg og afar hrífandi kvikmynd. Lýsingin á hinni ungu Fanny, sem þarf að kveðja ástvin þegar hún vill helst horfa fram á veginn, er svo hnitmiðuð að þetta algenga viðfangsefni – veikindi og sorg – verður trúverðugt á nýjan leik og snertir við áhorfandanum. Sylvia Le Fanu, sem hér þreytir frumraun sína sem leikstjóri, bregður upp sannfærandi lýsingum á samveru móður, föður og unglingsdóttur í sumarbústað og veitir um leið óvænt og ljóðrænt sjónarhorn á viðfangsefnið. Boðskapurinn er að hægt sé að upplifa tímabilið fyrir dauðann sem sambland af ofurhversdagslegum atvikum og bið; blöndu alls þess sem fólk nær aldrei að segja og sorgarinnar sem sækir að áður en dauðinn hefur knúið dyra. Le Fanu byggir hér á eigin reynslu af sorginni og því að missa ástvin úr krabbameini fyrir aldur fram. Persónuleg reynsla leikstjórans skín í gegn frá fyrstu senu til hinnar síðustu; er greinileg en aldrei þunglamaleg.

Min Evige Sommer vitnar um aðdáunarverða sjálfsstjórn og mannskilning í formi frásagnar sem hefði auðveldlega getað orðið niðurdrepandi og valdið áhorfendum innilokunarkennd. Þess í stað er hún borin uppi af léttleika í svipmyndum fjölskyldunnar og af væntumþykju gagnvart persónunum. Klippingin er fáguð og vekur áhorfendur til umhugsunar – hún er ekki aðeins raunsæ heldur einkennist einnig af sýn sem er óvanalega skýr og þroskuð miðað við frumraun kvikmyndaleikstjóra. Myndin sýnir að skáldskapurinn getur sagt okkur ýmislegt um mannlega tilvist sem er ekki síður mikilvægt en það sem á sér stað í samfélagsmálum eða pólitík. Um leið er sagan margslungin og auðvelt að samsama sig henni. 

Fanny kynnist móður sinni um leið og móðirin býr sig undir að yfirgefa jarðvistina. Hún þarf að kynnast sjálfri sér sem ungri manneskju um leið og hún ber þunga byrði. Mitt í öllum treganum glittir í von sem birtist í fallegum og bjartsýnum endalokum myndarinnar. Í dimmum bíósalnum getum við ornað okkur við ljóstíruna sem Sylvia Le Fanu veitir með þessari mynd.

Sylvia Le Fanu

Sylvia Le Fanu útskrifaðist frá Kvikmyndaskóla Noregs árið 2020 og er einnig með B.A.-próf í kvikmyndafræði og miðlun frá Kaupmannahafnarháskóla. Hún stundaði nám við óháða kvikmyndaskólann 18 FRAMES þar sem hún skrifaði og leikstýrði stuttmyndinni Abu Adnan (2017) sem hlaut alþjóðlega viðurkenningu, meðal annars á hátíðinni í Clermont-Ferrand. Myndin var tilnefnd til hinna dönsku Robert-verðlauna (2017), líkt og næsta stuttmynd Le Fanu, Amourteur (2020), sem hreppti einnig aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Óðinsvéum. Báðar myndirnar unnu til Ekko Shortlist-verðlauna, árin 2017 og 2021. Min Evige Sommer er fyrsta kvikmynd Sylviu Le Fanu í fullri lengd.

Mads Lind Knudsen

Mads Lind Knudsen er handritshöfundur, búsettur í Kaupmannahöfn, sem stundaði háskólanám í heimspeki og stærðfræði en gaf það upp á bátinn til að helga sig kvikmyndagerð. Hann útskrifaðist frá Kvikmyndaskóla Noregs árið 2020. Fyrsta mynd hans var kvikmyndin Min Evige Sommer sem hann skrifaði ásamt Sylviu Le Fanu, samstarfskonu til margra ára. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í San Sebastián árið 2024. Mads Lind Knudsen hefur ritstíl sem minnir á mósaíklist og skapar senur með ljóslifandi en hverfulum hughrifum og athugunum, þar sem gangur tímans er rauði þráðurinn í frásögninni.


 

Jeppe Wowk

Jeppe Wowk er kvikmyndaframleiðandi sem nam við óháða kvikmyndaskólann 18 FRAMES (2011–2013) og síðar við Kvikmyndaskóla Noregs (2017–2020). Hann hefur unun af því að starfa að þróun kvikmyndaverkefna og mannfólks – og að hinum skapandi hliðum markaðssetningar. Jeppe Wowk starfaði hjá Adomeit Film í Kaupmannahöfn á árunum 2020–2024. Hann er nú sjálfstætt starfandi og vinnur að sjónvarpsþáttaröð í samstarfi við SF Studios.

Aðalleikstjóri: Sylvia Le Fanu
Aðalhöfundur: Sylvia Le Fanu, Mads Lind Knudsen
Aðalframleiðandi: Jeppe Wowk
Framleiðslufyrirtæki: Adomeit Film ApS
Dreifing: Reel Pictures
Alþjóðleg dreifing: Trust Nordisk
Titill á frummáli: Min Evige Sommer
Frumsýning í heimalandi: 27. febrúar 2025
Lengd: 105 mínútur