Ola Kvernberg
Tónlistin úr kvikmyndinni Flåklypa – Fra Paris til pyramidene („Flåklypa – Frá París til pýramídanna“) eftir Ola Kvernberg (f. 1981) er metnaðarfullt og heildstætt verk þar sem kvikmyndatónlist fyrir hljómsveit mætir djassi og tjáningu sem þverar mörk tónlistargreina í skýrum og persónulegum tónsmíðastíl. Hljómsveitarverkið, sem er samið fyrir eina mögnuðustu menningarfrásögn Noregs og meðal annars flutt af Sinfóníuhljómsveit Þrándheims, er listræn endurtúlkun á söguvettvanginum Flåklypa – þar sem virðing fyrir hefðinni fléttast saman við sjálfstætt og endurskapandi tónlistartungumál.
Með útgangspunkt í söguþræði myndarinnar skapar Kvernberg ríkulegan og heildstæðan hljóðheim þar sem persónur, staðir og andrúmsloft fá skýrar tónlistarlegar birtingarmyndir. Tónlistin er ekki aðeins undirleikur við kvikmyndina heldur burðarstoð í dramatúrgíu hennar, byggð upp af gegnumgangandi stefi sem þróast og breytist í gegnum myndina. Útkoman er tónlistarfrásögn sem rúmar bæði orku, kímni og viðkvæmni og opnar á nýjar víddir í kunnuglegum heimi. Verkið einkennist af mikilli hljómrænni breidd og úthugsaðri hljómsveitarútsetningu þar sem sinfónísk einkenni mæta hrynbundnum drifkrafti og spuna.
Þrátt fyrir stafrænt samhengi myndarinnar er hljóðheimurinn órafmagnaður og lífrænn, með ríka áherslu á lifandi hljóðfæri og handverk. Bakgrunnur Kvernbergs á sviði djass og spuna mætir formfestu og nákvæmni sígildrar kvikmyndatónlistar og úr verður tjáning sem er bæði fjörleg, sveigjanleg og örlát.
Tónlistin við Fra Paris til pyramidene er gott dæmi um kvikmyndatónlist sem getur staðið sem sjálfstætt listaverk með eigin sérkenni og varanleika. Hljómræn hugvitssemi, leikhúsfræðilegur styrkur og geta til að endurnýja þýðingarmikinn hluta af norskum menningararfi gera verkið að mikilvægu framlagi til norrænnar samtímatónlistar – tónsmíð sem vitnar um virðingu fyrir hefðinni og ber hana jafnframt áfram.