Sauli Zinovjev

Ljósmyndari
Sauli Zinovjev
Tónskáldið Sauli Zinovjev hlýtur tilnefningu til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2026 fyrir fiðlukonsertinn Maailman kantaja.

Sauli Zinovjev hefur skapað sér alþjóðlegt orðspor fyrir mikilfengleg hljómsveitarverk. Á verkaskrá hans er langur listi tilkomumikilla tónsmíða. Annar fiðlukonsert Zinovjevs, Maailman kantaja („Sá sem ber heiminn“, 2025) er listilega skrifað verk og glæsileg viðbót við tónlistargreinina. Konsertinn var pantaður og frumfluttur af Sinfóníuhljómsveit finnska ríkisútvarpsins og var einleikshlutinn fluttur af Nikita Boriso-Glebsky, sem hefur unnið til fjölda verðlauna í tónlistarkeppnum. 

Þetta einkar tjáningarríka verk hefur sterka og persónulega rödd og tjáskiptakennda nálgun. Tónskáldið nýtir sinfóníuhljómsveitina eins og hún leggur sig. Verkið er sniðið fyrir fyrsta flokks einleikara og krefst mikils af þeim sem heldur á fiðlunni. Útkoman er íhugult og viðburðaríkt ferðalag gegnum hrynbundna og draumkennda hljóðheima. 

Sauli Zinovjev (f. 1988) spilaði á gítar í rokkhljómsveit en sneri sér svo að listrænni tónlist og nam tónsmíðar við Síbelíusarakademíuna í Helsinki. Verk hans hafa verið flutt af finnskum og norskum hljómsveitum en einnig af heimsfrægum sveitum á borð við Concertgebouw í Hollandi og Sinfóníuhljómsveit Chicago-borgar. Konsertar hans hafa verið frumfluttir af hljóðfæraleikurum á heimsmælikvarða, svo sem þýska slagverksleikaranum Vivi Vassileva og Víkingi Heiðari Ólafssyni, píanóleikara og handhafa tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2025.